„Ég trúi því ekki að fólk sjái ekki óréttlætið og mismunina sem þarna blasir við,“ segir Inga Sæland um samþykki tillögu um eingreiðslu til örykja en ekki tillögu hennar um sambærilega eingreiðslu til eldra fólks.
Þetta kemur fram í nýjum skoðanapistli Ingu sem birtist í Morgunblaðinu.
„Þetta er eldra fólk sem áður var öryrkjar og umbreyttist á einni nóttu í 67 ára fullfríska einstaklinga samkvæmt skilgreiningu laganna. Á svipstundu lækkuðu lífeyrisgreiðslur til þeirra sem áður höfðu fengið greitt viðbótarframlag frá TR vegna aldurstengdrar örorku,“ segir Inga jafnframt í pistli sínum og bætir við að í þessum hópi fátækustu eldri borgara landsins séu einnig fullorðnar konur, ömmur og langömmur sem eyddu öllum sínum starfsæviárum í það að vera heimavinnandi húsmæður. „Þessar konur eiga þar af leiðandi engin lífeyrissjóðsréttindi.“
Inga segist einnig hafa lagt til breytingartillögu við fjáraukann upp á 150 milljónir króna til hjálparstofnana sem styðja við þá sem eiga bágast í samfélaginu.
„Það er athyglinnar virði að sjá hvernig raunverulega er litið á þá sem stjórnvöld halda í það sárri fátækt að þau neyðast til að standa í löngum röðum fyrir framan hjálparstofnanir til að biðja um mat. Þörfin er slík að ekki er hægt að anna allri þeirri eftirspurn sem óskað er. Oft þarf að loka á þá sem eru aftastir í röðinni þar sem maturinn er uppurinn í það skiptið. Þannig verða margir frá að hverfa án þess að fá mat fyrir sig og börn sín,“ segir Inga og heldur áfram:
„Með tilliti til þess hvernig hægt er að ausa peningum milljarðatugavís eins og að mublera upp Seðlabankann og dytta að honum fyrir ríflega þrjá milljarða króna. Eins og að óska eftir sex milljörðum til að fjárfesta í Snob Hill við Austurbakka (nýju Landsbankahöllinni). Eins og að ausa milljörðum í stólaskipti ráðuneyta. Eins og að tapa stórfé úr ríkissjóði með lækkun bankaskatts. Eins og að tapa milljörðum með því að sækja ekki aukna fjármuni til stórútgerðar sem hefur makað krókinn á sameiginlegri auðlind okkar. Hvorki meira né minna en 533 milljarðar króna frá 2009 í hreinan hagnað sjávarútvegsins og þá búið að greiða fyrir aðganginn að auðlindinni 85,9 milljarða. Ég veit ekki með ykkur en mér finnst þetta vægast sagt síðasta sort,“ segir Inga að lokum í pistli sínum.
Tillögur hennar hafi verið felldar. „Stjórnarflokkarnir samstiga sem einn maður og sneru öll blinda auganu að sínum minnstu bræðrum og systrum.“