Mikill fjöldi einkaþota hefur lent á Reykjavíkurflugvelli það sem af er sumri. Það fer illa í Illuga Jökulsson sem skrifar í færslu á Facebook-síðu sinni að þær, sem og þyrlurnar sem sveima yfir borginni, séu svo hávaðasamar að erfitt sé að eiga samtöl þegar er fljúga yfir.
„Ef ég væri ekki jafn geðgóður og ég er, þá myndi ég mæta argandi á fund samgönguyfirvalda og heimta að þessi hávaðagildra verði fjarlægð. Ég ætla að hlífa samgönguyfirvöldum við því, “ skrifar Illugi og spyr að lokum hvort „hagsmunir einkaþotueigenda eitthvað meira virði en mínir?“