Háværir orðrómar eru um það innan verkalýðshreyfingarinnar að Sólveig Anna Jónsdóttir, sem lét af starfi formanns Eflingar á síðari hluta síðasta árs, ætli að bjóða sig fram gegn A-lista Eflingar í formannskjöri verkalýðsfélagsins.
Frá þessu greinir Vísir. Þar segir að þetta valdi titringi á skrifstofu Eflingar þar sem enn hafi ekki gróið um heilt milli Sólveigar Önnu og starfsfólks þar eftir atburðarás sem endaði með afsögn Sólveigar og bandamanns hennar Viðars Þorsteinssonar sem gegndi starfi framkvæmdastjóra. Gert er ráð fyrir að hann hyggi á endurkomu sömuleiðis í slagtogi við Sólveigu Önnu.
Hann vildi hins vegar ekkert tjá sig um málið er Vísir náði á hann.
Því má sterklega gera ráð fyrir að fram undan sé hörð barátta innan Eflingar um efstu stöður innan verkalýðsfélagsins.