Heimsklassa sjávarréttahátíð í Eyjum sló í gegn

Í þættinum Matur og heimili á Hringbraut í kvöld leggur Sjöfn Þórðar leið sína til Vestmannaeyja á sjávarréttahátíðina MATEY sem haldin var í fyrsta skipti núna í september. Veitingastaðir, fiskframleiðendur og þjónustuaðilar í sjávarsamfélaginu Vestmannaeyjum tóku höndum saman og vöktu athygli á menningararfleifðinni og fjölbreytta fiskinum sem framleiddur er í Eyjum. Boðið var upp margvíslega töfrandi rétti úr hágæða hráefni úr Eyjum á veitingastöðum bæjarins auk þess sem boðið var upp á áhugaverða viðburði á hátíðinni.

Veitingastaðirnir í Eyjum Gott, Slippurinn, Einsi kaldi og Næs fengu til sín erlenda meistarakokka sem hafa gert garðinn frægan og buðu upp á margrétta sérseðla sem slógu í gegn. Allir staðirnir voru með gestakokka sem fengu að spreyta sig á íslenska sjávarfanginu, íslensku sprettunum frá Aldingróðri sem ræktaðar eru úti í Eyjum og bjórnum frá Brothers Brewery. Í næstu tveimur þáttum verður sýnt frá hátíðinni og veitingastaðirnir heimsóttir og fleiri aðilar sem tóku þátt.

MATEY Hringbraut .jpeg

Sjöfn hittir drifkraftana, þríeykið, sem ýttu hátíðinni úr vör, þau Frosta Gíslason verkefnastjóra hátíðarinnar, Írisi Róbertsdóttur bæjarstjóra Vestmannaeyja og Berglindi Sigmarsdóttur formann Ferðamálasamtaka Vestmannaeyja og fær að heyra um tilurð MATEYJAR.

Gott mynd 2.jpeg

Chris töfraði fram sælkerarétti á GOTT

Í þætti kvöldsins heimsækir Sjöfn veitingastaðinn GOTT og hittir eigendur og rekstraraðilana Sigurð Friðrik Gíslason yfirkokk og Berglindi Sigmarsdóttur sem og gestakokk þeirra Chris Golding en síðast var Chris yfirkokkur á Pantechnicon í London sem byggist á norrænni og japanskri hugmyndafræði. Sjöfn fær smjörþefinn af þeim sælkerafiskréttum sem þau buðu upp á. Chris var hreinlega dolfallinn yfir því hráefni sem hann fékk í hendur og töfraði fram sælkerarétti sem eiga sér enga líka.

Slippurinn 2.jpeg

Leif kenndur við KOKS á Slippnum

Síðan liggur leið Sjafnar til Gísla Matthíasar Auðunssonar á Slippnum þar sem hún fær að kíkja í eldhúsið til hans og gestakokksins, Leif Sørensen sem alla jafna er kenndur við færeyska michelin staðinn KOKS, og bragðar af sælkerafiskréttum sem þar voru í boði. Leif hefur mikla ástríðu fyrir að útbúa mat úr staðbundnu hráefni og naut sín svo sannarlega með hið ferska og hágæða hráefni sem Eyjar bjóða upp á. Hugmyndaauðgi með brögð og framsetningu heilluðu matargesti upp úr skónum enda matarupplifun í boði sem á sér enga líka.

Brothers brewery.jpeg

Okkar eigin hvönn

Margir tóku þátt í þessari hátíð, meðal annars bruggsmiðjan Brothers Brewery en þeir buðu upp á nýjan bjór, Okkar eigin hvönn í tilefni hátíðarinnar. Sjöfn heimsækir Jóhann Guðmundsson sem þar stendur vaktina og fær að heyra um undur bjórsins þar sem hvönnin er í forgrunni.

Slippurinn.jpeg

Það má með sanni segja að Vestmannaeyjar séu komnar á heimskort matgæðinga en sjávarréttahátíðin MATEY sannaði það. Í kvöld er fyrri hluti um sjávarréttahátíðina MATEY og seinni hlutinn verður sýndur að viku liðinni þar sem veitingastaðirnir Einsi Kaldi og Næs verða heimsóttir ásamt fleiri aðilum sem tóku þátt í hátíðinni.

Meira um MATEY í þætti kvöldsins Matur og heimili á Hringbraut klukkan 19.00 og aftur klukkan 21.00.

Brot úr þætti kvöldsins má sjá hér: