Fjögurra ára drengur í Hafnarfirði lést á Landspítalanum á mánudag. Í frétt Fréttablaðsins staðfestir Sævar Guðmundsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni í Hafnarfirði, að aðskotahlutur hafi fests í hálsi drengnum með fyrrgreindum afleiðingum.
Mannlíf greindi fyrst frá málinu í morgun.
Í frétt Mannlífs er vísað í tilkynningu frá leikskóla drengsins þar sem fram kemur að drengurinn hafi orðið fyrir alvarlegu slysi á leiðinni heim úr leikskólanum síðastliðinn miðvikudag. Varð slysið til þess að drengurinn lést á mánudagsmorgun eftir aðhlynningu á Landspítalanum.
Þá kemur fram í fréttinni að áfallateymi leikskólans og áfallahjálparteymi Hafnarfjarðar hafi verið virkjað.
„Hugur okkar allra er hjá foreldrum og fjölskyldu og við sendum þeim okkar innilegustu samúðarkveðjur,“ segir í tilkynningu leikskólans sem vísað er til í frétt Mannlífs.