Hann fann að eitthvað hafði breyst

Treystu mér er heiti á verkefni sem hefur undanfarið verið safnað til á Karolinafund og náðist að safna meira en þurfti til. Að baki verkefninu er Elísabet Sveinsdóttir grunnskólakennari og hestakona en Treystu mér snýst um umgengni og samneyti við hesta fyrir andlega veik börn eða börn með þroskafrávik.

Elísabet mætti til Lindu Blöndal í þáttinn 21 á miðvikudag og hefur hún nú þegar opnað fyrir börnum hesthúsið á Selfossi, þar sem hún býr og verður það m.a. í samstarfi við félagsmálasvið Árborgar.

Elísabet, sem hefur sinnt hestum og riðið út frá blautu barnsbeini, segir hugmyndina hafa orðið til eftir mikil eigin veikindi en Elísabet fékk brjóstakrabbamein fyrir um 7 árum síðar og þurfi í brjóstnám og lyfjameðferð í kjölfarið. Hún fór mikið út í hesthús þegar hún var að ná sér og fann að það gerði sér gott í bataferlinu. Þegar hún ákveður á ný að fara á bak var henni ráðlagt að fara á rólegan „barnahest“ en hún segir að ekkert annað hafa komið til greina en hennar hestur.

„Ég vildi bara minn klár sem er grjótharður keppnishestur“, segir hún og á við hestinn Hramm sem hún átti lengi. Um leið og hún fór á bak eftir hin löngu veikindi fann hún að margt hafði breyst í viðmóti Hramms.

Elísabet og Hrammur