Haldið ykkur fast – Þessar bolludagslengjur eru guðdómlegar

Það styttist óðum í bolludaginn stóra sem er í miklu uppáhaldi hjá mörgum. Margir taka forskot í bolludagssæluna og njóta þess að baka og bjóða í bolluveislu um helgina. Það má því með sanni segja að það verði bolluþema hjá okkur næstu daga þar sem við ætlum að ljóstra upp nokkrum sælkera uppskriftum af bollum í ýmsum stærðum, gerðum og tegundum. Við ætlum að byrja á þessari dásemd, sem Berglind Hreiðarsdóttir köku- og matarbloggari með meiru var að töfra fram í einu nostalgíu baksturs kastinu sínu eins og henni einni er lagið. Hér er komin bolla í nýju formi, vatnsdeigslengju, sem töfrar alla gestina þína upp úr skónum.

„Nostalgían hefur verið í algjöru hámarki hjá mér með þetta nammi í vikunni,“ segir Berglind sem kann svo sannarlega að detta í nammigírinn eins og hann gerist bestur. Þessar bollur eða öllu heldur lengjur eru bara eitthvað sem allir sælkerar verða að prófa með þessari fyllingu. Berglind heldur úti bloggsíðunni Gotterí og gersemar.

M&H Bolludagslengjur BH 00.jpg

Einstaklega girnilegar þessar vatnsdeigslengjur með kaffirjómanum og Toffifee molunum. Ljósmyndir Berglind Hreiðarsdóttir.

Vatnsdeigslengjur með kaffirjóma

15-18 lengjur

  • 180 g smjör
  • 360 ml vatn
  • 200 g hveiti
  • 1 tsk. lyftiduft
  • ¼ tsk. salt
  • 3-4 egg (160 g)
  1. Hitið ofninn í 180°C.
  2. Hrærið saman hveiti, lyftidufti og salti í skál og geymið.
  3. Hitið saman vatn og smjör í potti þar til smjörið er bráðið og blandan vel heit og takið þá af hellunni.
  4. Hellið hveitiblöndunni saman við smjörblönduna og hrærið/vefjið saman við með sleif þar til allir kekkir eru horfnir og blandan losnar auðveldlega frá köntum pottsins.
  5. Flytjið blönduna yfir í hrærivélarskálina og hrærið á lægsta hraða með K-inu og leyfið hitanum þannig að rjúka aðeins úr blöndunni.
  6. Pískið eggin saman í skál og setjið þau saman við í litlum skömmtum og skafið niður á milli. Best er að vigta blönduna því egg eru misstór og nota aðeins 160 g henni til þess að deigið verði ekki of þunnt.
  7. Setjið deigið í sprautupoka með um 1,5 cm breiðum stút og sprautið um 15 cm lengjur á bökunarpappír með gott bil á milli. Athugið að þær munu stækka og breikka alveg um helming í ofninum svo ekki hafa áhyggjur þó þær virðist „mjóar og langar“ þegar þið sprautið þeim á.
  8. Bakið í 27-30 mínútur, lengjurnar eiga að vera orðnar vel gylltar og botninn líka, ekki opna þó ofninn fyrr en í fyrsta lagi eftir 25 mínútur til að kíkja undir eina.

Fylling

  • 600 ml rjómi
  • 2 msk. flórsykur
  • 15 g fínmalað instant kaffiduft
  • 125 g saxað Toffifee (1 pakki)
  1. Þeytið saman rjóma, flórsykur og instant kaffiduft.
  2. Vefjið söxuðu Toffifee saman við og fyllið lengjurnar með kaffirjóma.

Súkkulaðiglassúr og skraut

  • 100 g brætt smjör
  • 210 g flórsykur
  • 2 msk. Cadbury bökunarkakó
  • 2 tsk. vanilludropar
  • 3 msk. uppáhellt kaffi
  • Toffifee (15-18 stk)
  1. Hrærið saman brætt smjör, flórsykur, bökunarkakó, vanilludropa og kaffi þar til slétt og falleg súkkulaðibráð hefur myndast.
  2. Smyrjið súkkulaðiglassúr á lengjurnar og skreytið með Toffifee og brúðarslöri.

Gaman er að bera þessar fram þar sem þær njóta sín sem augnakonfekt af bestu gerð.

M&H vatnsdeigslengjurnar BH 4.jpg