Gummi Ben brýtur þögnina og er nóg boðið: „Enda­lausar á­rásir að heiðri og per­sónu Alberts“

Guðmundur Benediktsson sakar Arnar Þór Viðarsson, landsliðsþjálfara íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu um leikþátt eftir nýjustu ummæli hans um Albert Guðmundsson, son Guðmundar sem var ekki valinn í landslið Íslands fyrir fyrstu leiki liðsins í undankeppni EM. Þetta kemur í frétt Fréttablaðsins.

Guðmundur hefur nú sent frá sér yfirlýsingu, sem birtist uppphaflega á Vísi.is, um málið eftir að Arnar Þór lét hafa það eftir sér í viðtali við fjölmiðla í gær að Albert hefði afþakkað landsliðssæti í ljósi þess að hann sætti sig ekki við bekkjarsetu í fyrsta leik Íslands gegn Bosníu í undankeppni EM.

„Ég get ekki, sem þjálfari, valið leik­mann í hóp hjá mér sem er ekki til­búinn til að byrja á bekknum í á­kveðnum leikjum og taka því hlut­verki sem við teljum að sé best fyrir liðið.“

Guðmundur segir ástæðuna fyrir því að hann hafi ekki tjáð sig um málið fyrr en nú fyrst og fremst vera þá að hann er íþróttafréttamaður.

„En ég er fyrst og fremst faðir Alberts Guðmundssonar sem hefur verið viðriðinn landsliðið undanfarin ár.“

Honum hafi hins vegar verið nóg boðið eftir ummæli Arnars Þórs í gær.

„Rétt er að taka fram að ég geri enga kröfu á að Albert eigi að vera í landsliðshópi. AÞV var ráðinn til að stjórna því og getur gert hvað sem honum sýnist í þeim efnum. En endalausar árásir að heiðri og persónu Alberts þegar hann er ekki í hópnum mun ég ekki líða lengur og þykir mér með ólíkindum að Knattspyrnusambandið láti þetta viðgangast.“

Yfirlýsing frá Guðmundi Benediktssyni í heild sinni:

Ég hef nánast setið á strák mínum allt frá ráðningu Arnars Þór Viðarssonar þrátt fyrir að hafa ýmislegt við framkomu hans á fjölmiðlafundum að athuga eftir að hann tók til starfa.

Ég viðurkenni þó að ég hafði samband við Guðna Bergsson, þáverandi formann á sínum tíma, og bað hann að finna hjálp fyrir AÞV (Arnar Þór Viðarsson) til að undirbúa hann betur undir blaðamannafundi.

Meginástæðan fyrir því að ég hef ekki tjáð mig opinberlega fyrr er að ég er íþróttafréttamaður. En ég er fyrst og fremst faðir Alberts Guðmundssonar sem hefur verið viðriðinn landsliðið undanfarin ár.

Mér var hins vegar nóg boðið í gær eftir síðustu ummæli AÞV.

Rétt er að taka fram að ég geri enga kröfu á að Albert eigi að vera í landsliðshópi. AÞV var ráðinn til að stjórna því og getur gert hvað sem honum sýnist í þeim efnum.

En endalausar árásir að heiðri og persónu Alberts þegar hann er ekki í hópnum mun ég ekki líða lengur og þykir mér með ólíkindum að Knattspyrnusambandið láti þetta viðgangast.

Í síðustu viku bjallaði AÞV í Albert og ræddi mögulega endurkomu Alberts í landsliðið. Þeir áttu fínt samtal, samkvæmt Alberti, en niðurstaðan var að Albert taldi best að hann gæfi ekki kost á sér í þetta verkefni af ýmsum ástæðum.

AÞV heldur því fram að eina ástæðan sé að Albert neiti að vera varamaður sem er ekki rétt.

„Ég vel ekki leikmenn sem vilja ekki vera á bekknum,“ sagði Arnar við fjölmiðla.

Fjölskylduástæður spiluðu stóra rullu í ákvörðun Alberts ásamt stöðu Genoa í ítölsku deildinni og það veit AÞV mæta vel en ákveður að láta leikmanninn líta illa út enn og aftur.

Þess má líka geta að Albert hefur aldrei tjáð sig um þjálfarann og persónuna AÞV þrátt fyrir ótal tækifæri til að fara í leðjuslaginn sem AÞV virðist elska og fjölmiðlar apa upp eftir honum.

Ég kalla þetta leikþátt og ég stend við það þar sem ég er þess fullviss að AÞV hafði engan áhuga á að velja Albert en taldi sig nauðbeygðan þar sem Alberti hefur gengið vel á Ítalíu að undanförnu.

Eftir símtal þeirra á milli ákveður hann að ráðast á Albert og ekki í fyrsta sinn sem þjálfarinn reynir að gera lítið úr honum eftir að hafa tilkynnt hóp sinn. Ég veit ekki hvaða belgísku þjálfaranámskeið AÞV hefur setið en ég vona að þessi nálgun sé ekki kennd þar né á öðrum námskeiðum.

Persónulega hefði ég tilkynnt í september 2022 að ég myndi aldrei spila fyrir Ísland aftur undir stjórn AÞV eftir árásirnar frá þjálfaranum en sem betur fer er ég ekki Albert og hann er alltaf stoltur að fá að spila fyrir Ísland.

Ég óska íslenska liðinu velgengni í verkefninu sem framundan er og þar af leiðandi þjálfaranum en vona líka innilega að hann læri að umgangast fólk sem er mikilvægast í þjálfun.

Gummi Be

„Ég er fyrst og fremst faðir Alberts,“ skrifar Gummi Ben í yfirlýsingu um málið sem er á allra vörum.

Gumma Ben nóg boðið og brýtur þögnina: „Endalausar árásir að heiðri og persónu Alberts“

Guðmundur Benediktsson sakar Arnar Þór Viðarsson, landsliðsþjálfara íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu um leikþátt eftir nýjustu ummæli hans um Albert Guðmundsson, son Guðmundar sem var ekki valinn í landslið Íslands fyrir fyrstu leiki liðsins í undankeppni EM.

Gummi Ben