„Niðurstöður vefkannana Útvarps Sögu, Reykjavík Síðdegis og DV.is segja ekkert um skoðanir þeirra sem ekki tóku þátt, það er í besta falli samkvæmisleikur að horfa á % þar en samt eiginlega ekki sniðugur leikur,“ segir Viktor Orri Valgarðsson, stjórnmálafræðingur og fyrrverandi varaþingmaður.
Viktor gerir þarna skoðanakannanir síðustu daga að umtalsefni sem eiga að sýna stöðu frambjóðenda í forsetakosningunum. Guðni Th. Jóhannesson og Guðmundur Franklín Jónsson verða tveir í framboði til forseta.
Í niðurstöðum könnunar sem DV gerði á dögunum reyndist Guðni vera með 49,09% fylgi en Guðmundur 44,2%. Í frétt DV um niðurstöðurnar segir að rúmlega 27 þúsund IP-tölur hafi tekið þátt. Fékk Guðni 13.356 atkvæði en Guðmundur 12.010 atkvæði.
„Það er pínu athyglisvert að Guðmundur Franklín hafi fengið 12.010 atkvæði í könnun DV.is, en jafnvel þó við gefum okkur að enginn hafi kosið oftar en einu sinni þar þá samsvarar það ca. 7% atkvæða í síðustu forsetakosningum. Ég hef hingað til gert ráð fyrir að þakið hans sé í kringum 10-13% svo þetta breytir engu um það,“ segir Viktor Orri.
Hann gerir niðurstöður könnunar MMR á fylgi flokkanna sem birtust í fyrradag einnig að umtalsefni en þar vakti sterk staða Sjálfstæðisflokksins, í samanburði við aðra flokka að minnsta kosti, og mikið fylgi Pírata athygli. Píratar eru næststærsti flokkur landsins samkvæmt könnuninni.
„Ein könnun MMR segir líka voðalega lítið út af fyrir sig, þó Pírötum finnist gaman að sjá flokkinn mælast tiltölulega hátt þar. Fylgi flokkanna hefur verið að sveiflast um þetta bil allt kjörtímabilið, þ.á.m. Pírata frá ca. 8-14%, svo það þyrfti fleiri svipaðar kannanir til að ég færi að líta svo á að eitthvað hafi breyst þar.“