Guðmundur Felix allur að koma til: Til fjandans með Pollýönnu

Bat­­a­­ferl­­i Guð­­mund­­ar Fel­­ix Grét­­ars­­son­­ar, sem gekkst und­­ir að­­gerð þar sem grædd­­ar voru á hann hend­­ur, geng­­ur vel og hann hvet­­ur fólk til að iðka þakk­l­æt­­i og ekki láta vand­­a­­mál­in skemm­a fyr­­ir sér.

„Ég hlust­a stund­um á fólk segj­a að það að horf­a á hlut­in­a í raun­hæf­u sam­heng­i sé ein­hvers kon­ar Poll­ý­önn­u-leik­ur. Ég segi: Til fjand­ans með Poll­ý­önn­u. Ef við eig­um við vand­a að stríð­a, eru tveir kost­ir í stöð­unn­i. Annað­hvort get­um við gert eitt­hvað í því, eða ekki. Hvor­ugt til­fell­ið kall­ar á að við för­um yfir um,“ skrif­ar Guð­mund­ur Fel­ix á Fac­e­bo­ok-síðu sinn­i.

„Flest vand­a­mál­a þinn­a eru ekki raun­ver­u­leg vand­a­mál. Hlut­irn­ir eru bara öðru vísi en þú vilt að þeir séu. Allt gæti allt eins ver­ið verr­a, rétt eins og það gæti ver­ið betr­a. Við höf­um marg­falt meir­a færi á að gera það sem við þurf­um að gera þeg­ar við erum ham­ingj­u­söm en þeg­ar okk­ur líð­ur hræð­i­leg­a. Þann­ig að velj­um þakk­læt­i,“ skrif­ar Guð­mund­ur Fel­ix enn frem­ur.

Um fjór­ir mán­uð­ir eru síð­an að­gerð­in var fram­kvæmd en Guð­mund­ur Fel­ix þurft­i að bíða í mörg ár eft­ir líf­fær­a­gjaf­a. Hann dvald­i lang­dvöl­um á sjúkr­a­hús­i eft­ir að­gerð­in­a en get­ur nú dval­ið heim­a við að ein­hverj­u leyt­i. Hann er laus við að bera sár­a­bind­i all­an dag­inn en ekki er enn ljóst hvort að­gerð­in hafi heppn­ast að öllu leyt­i. Það mun tím­inn leið­a í ljós.