Guðmundur Andri fékk dularfull skilaboð í fyrrakvöld: „Þá vaknaði ég loksins og hélt nú ekki“

Guðmundur Andri Thorsson, rithöfundur og fyrrverandi þingmaður, fékk dularfull skilaboð í fyrrakvöld frá manneskju sem hann þekkir ekki neitt en tengist honum þó á Facebook.

Guðmundur Andri segir frá þessu í færslu sem hann birti í gærkvöldi en í skilaboðunum óskaði manneskjan eftir því að fá símanúmerið hans.

Guðmundur Andri segir að það hafi verið auðsótt en hann bað manneskjuna þó að hringja daginn eftir þar sem hann er kvöldsvæfur.

„Held að hún eigi við mig eitthvert erindi, eins og stundum hendir. Nei, ekki alveg, hún segir að þetta sé eitthvað Amazon-söluátak og ég muni fá í símann minn talnakóða og biður mig að senda sér það. Ég er frekar greiðvikinn maður að eðlisfari og sé enga ástæðu til að neita konunni um þetta - og auk þess orðinn syfjaður og með hugann við frekar flókna Sherlock Holmes mynd,“ segir Guðmundur Andri.

Úr varð að hann sendi henni kóðann og um leið tilkynnti hún honum að þau hefðu unnið dágóða fúlgu. Óskaði manneskjan eftir því að hann myndi senda henni mynd af greiðslukorti sínu, bæði fram- og afturhlið.

„Þá vaknaði ég loksins og hélt nú ekki. Hún sór og sárt við lagði að allt væri í himnalagi en ég sat við minn keip. Fór svo bara að sofa, rétt áður en Sherlock leysti málið, eins og ég geri iðulega. Sé svo í dag á einhverjum miðli að eitthvað svindl sé í gangi sem virðist lýsa sér á svipaðan hátt, og jafnvel geti gerst að prófíllinn minn lendi í tröllahöndum. Það hefur enn ekki gerst,“ segir Guðmundur Andri sem biðlar til Facebook-vina sinna.

„Sem sé: kæru Facebookvinir - ef þið fáið skilaboð frá mér um að senda símanúmerið ykkar, ekki trúa mér. Ég hef engan áhuga á símanúmerinu ykkar.“