Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, ökklabrotnaði í morgun. „Slysið var klaufalegt, eins og flest slys. Var að hlaupa á milli funda, stytti mér leið og skrikaði fótur,“ sagði Guðlaugur Þór í Facebook-færslu.
„Eru ekki táslumyndir í tísku?“ spurði Guðlaugur Þór sem segist vera kominn í gips en bíður eftir því að komast í aðgerð, „því þetta er ekki gott.“
„Starfsfólk Landspítalans fór afskaplega vel með mig eins og þeirra var von og vísa og Ágústa tók vel á móti mér. Ég hef ekki yfir neinu að kvarta.“
Hann segir frá því að dagskrá hans muni riðlast til og hann biðst velvirðingar á þessu.
Hundur hans, Máni, virðist miður sín yfir slysinu. „Máni hefur áhyggjur af morgungöngutúrunum en því verður bjargað,“ segir Guðlaugur Þór.