Guðdómlegt humarsalat með hvítvíns- og eplasósu að hætti Bjargeyjar Ingólfs

Á dögunum heimsótti Sjöfn Þórðar í þættinum Fasteignir og heimili, Bjargeyju Ingólfsdóttur lífstílsbloggara og fagurkera með meiru á nýja draumpallinn hennar. Bjargey tekur ávallt höfðingjalega á móti gestum sínum og á því var engin undantekning þegar Sjöfn bar að garði. Bjargey var búin að dekka upp glæsilegt hádegisverðarborð og bauð uppá þetta dýrindis humarsalat með hvítvíns- og eplasósu. Matarupplifun Sjafnar var guðdómleg eins og hún sagði sjálf, „Mmm, þetta er guðdómlega ljúffengt humarsalat hjá þér og brögðin eru einstaklega skemmtilegt.“ Bjargey var svo elskuleg að gefa lesendum Hringbrautar uppskriftina svo nú er bara að njóta.

Humarsalatið í nærmynd.jpeg

Humarsalat í hvítvíns- og eplasósu að hætti Bjargeyjar

  • 1 kg stór humar, látið þiðna fyrir eldun
  • klettasalat
  • 3 hvítlauksgeirar
  • íslenskt smjör

Hvítvíns- og eplasósa

  • 3 epli, skorin í bita
  • 1 dl. hvítvín
  • 2 dl. rjómi
  • 1 1/2 tsk. dijon sinnep
  • 2 msk. fljótandi humarkraftur
  • salt og pipar eftir smekk

Humarsalati með sumarlegu ívafi - að hætti Bjargeyjar.jpeg

Meðlæti í salatið

íslenskt salat eða eigin vali, t.d. klettasalat

spínat

avókadó

pistasíukjarna

græn epli

olífuolía

himalaya salt

Byrjið fyrst á sósunni. Gott að nota stóra pönnu og byrja á því að setja eplin í bitum á miðlungs hita með klípu af íslensku smjöri. Setjið svo hvítvínið útá og leyfið þessu að malla þar til eplin hafa brúnast aðeins og eru orðin frekar mjúk.

Bætið síðan saman við rjómanum, dijon sinnepi og humarkraftinum og leyfið sósunni að krauma þar til hún verður þykk og djúsí. Hellið sósunni í skál og maukið hana með töfrasprota þannig að hún verði silkimjúk. Geymið hana í skálinni. Setjið vel af íslensku smjöri og 3 smátt skorna hvítlauksgeira útá pönnuna og hækkið hitann. Takið humarinn úr skelinni og setjið á vel heita pönnuna. Steikið í stutta stund þar til hann er fulleldaður, um það bil 3 mínútur hvora hlið. Setjið næst sósuna aftur út á pönnuna og smakka til, getið sett salt og pipar eða bætt við rjóma ef þarf, allt eftir ykkar smekk. Þegar sósan er tilbúin er ekkert annað eftir en útbúa salatið en humarinn er borinn fram með fersku salati, með spínati, avókadó, pistasíukjarna og grænum eplabitum sem sett er í stóra skál, grunna skál og smá olíuolífu dreypt fyrir ásamt örlitlu himalaya salti. Einnig er hægt að raða réttinum á diska fyrir hvern og einn gest og skreyta með salatinu. Humarsalatið er síðan borið fram með snittubrauði, grænu pestói og þeyttu smjöri. Njótið vel.