Grísk flatbrauðspítsa sem sælkerarnir missa sig yfir

Það ætlaði allt um koll að keyra við eldhúsborðið þegar María Gomez matar- og lífsstílsbloggari með meiru töfraði fram þessa sælkera grísku flatbrauðspítsu fyrir fjölskylduna á dögunum. María er einstaklega metnaðargjörn þegar kemur að því að elda hollan og góðan mat og þessi ljúfffenga flatbrauðspítsa ber þess sterk merki.

„Þetta er uppskrift af pítsu sem er ekki bara til að hafa föstudags. Þessa myndi ég hafa hvaða dag sem er vikunnar og þess vegna á sunnudegi líka,“segir María og elskar að töfra fram ljúffengar sælkera pítsur fyrir sig og sína á góðum degi. „Heimilisfólkinu fannst hún svo góð eftir frumraunina svo ég var beðin um að gera aftur þessa aftur strax daginn eftir. Hugmyndin kviknaði út frá Spanakopita bökunni sem er í miklu uppáhaldi hér heima.“

Hér kemur uppskriftinni af þessari dásemd.

M&H Grísk flatbrauðs pítsa paz 3.jpeg

Grísk flatbrauðspítsa að hætti Maríu

Botninn

270 g fínt spelt frá MUNA

1 tsk. fínt salt

1 msk. hrásykur frá MUNA

1 msk. vínsteinslyftiduft

350 g grísk jógúrt

Álegg

150 g spínat

200 g fetaostakubbur (ekki í olíu ná vatni)

Rifinn Mozzarella eða ferskur mozzarella þið megið ráða (ég notaði rifinn í poka)

1 tsk. sítrónusafi

2 stk. hvítlauksrif

MUNA extra virgin ólífuolía

ferskt rósmarín

MUNA kasjúhnetur

Gróft salt

svartur pipar

Gúrku jógúrtsósa

350 g grísk jógúrt

1 msk. MUNA akasíuhunang

1/2 gúrka

1-2 tsk. gróft salt

pipar eftir smekk

MUNA akasíuhunang til að setja á pítsuna eftir á.

Aðferð:

Botninn

  1. Setjið þurrefnin saman í skál og hrærið með skeið.
  2. Bætið næst jógúrtinni út í og hrærið vel saman.
  3. Setjið svo á borð með spelti ofan á og hnoðið og bætið við spelti eins og þarf þar til deigið hættir að klístrast við fingur og borð.
  4. Fletjið deigið næst út með kökukefli en það má alveg vera smá þykkt og þarf að passa á pönnu.
  5. Steikjið báðum megin á stórri grillpönnu eða steikarpönnu þar til það eru komnir brúnir flekkir í það eins og á flatbrauði.
  6. Færið svo botninn á smjörpappír ofan á bökunarplötu en það má rúlla aftur yfir það hér með kökukefli og kremja það betur út svo það verði þynnra og stærra, ekki hafa áhyggjur ef það er hálfhrátt því það á eftir að fara í ofninn.
  7. Setjið svo ólífuolíu yfir botninn ásamt hvítlauk sem er skorinn í örþunnar sneiðar og saltið með grófu salti yfir og stráið svo rifnum eða ferskum mozzarella osti í þunni lagi yfir (ekki of mikið).
  8. Setjið smá Muna ólífuolíu á pönnu og setjið svo spínatið út í heita olíuna og saltið og piprið.
  9. Þegar spínatið er helmingi minna en það var setjið þá 125-150 g (c.a hálfur kubbur) af fetaostinum ásamt sítrónusafanum út á og látið bráðna rétt svo saman.
  10. Takið svo af pönnuni og dreifið jafnt ofan á pizzabotninn með olíunni og hvítlauknum og mozzarella ostinum á og dreifið smá meira af köldum fetaosti yfir ásamt ferskum rósmaríngreinum og kasjúhnetum.
  11. Setjið svo smá meiri ólífuolíu yfir allt saman og stingið í 200 °C heitan ofninn með blæstri í 10-15 mín.
  12. Berið svo fram með jógúrtsósunni og MUNA akasíuhunangi til að setja ofan á pítsuna en ég lofa það er rosa gott.

Jógúrtsósan

  1. Meðan pítsan er í ofninum gerið þá sósuna.
  2. Hrærið jógúrtina upp og setjið salt, pipar og hunang útí ..
  3. Raspið svo hýðið af hálfri gúrku út í og bara rétt innan við hýðið svo að sósan verði ekki blaut. Hún á að vera þykk.
  4. Hrærið svo vel saman og geymið í kæli þar til pizzan er til og berið fram með henni.

Verði ykkur að góðu.

M&H Grísk flatbrauðs pítsa paz 2.jpeg

Girnilega þessi dásemdar flatbrauðspítsa./Ljósmyndir María Gomez.