Glúmur er bálreiður: „Það sýður á mér“

Glúmur Baldvinsson, sem mun skipa oddvitasætið á lista Frjálslynda lýðræðisflokksins fyrir komandi kosningar, segir að fólk spyrji hann nú á förnum vegi hvers vegna hann vill fara í pólitík.

Glúmur, sem er sonur Jóns Baldvins Hannibalssonar, fyrrverandi utanríkisráðherra, tilkynnti nokkuð óvænt á dögunum að hann hefði gengið til liðs við nýstofnaðan flokk Guðmundar Franklíns Jónssonar. Glúmur freistar þess í færslu á Facebook-síðu sinni að svara spurningum þeirra sem hafa áhuga á að vita af hverju hann ætlar út í pólitík.

„Þetta er góð spurning og ég hef velt fyrir mér einhverju skynsamlegu leiðinlegu, hefðbundnu, svari. En á endanum verð ég að vera hreinskilinn. Ég gef kost á mér af því ég er bálreiður. Það sýður á mér,“ segir Glúmur í færslu sinni og heldur áfram:

„Hvernig stendur á því að fámennt, forríkt, samfélag hér útí ballarhafi geti ekki verið fyrirmynd annarra og verið kennslubókardæmi um jöfnuð, jafnrétti og bræðralag. Af hverju þessi misskipting auðs? Af hverju klíkuskapur? Af hverju spilling og ekki af hverju heldur af hverju kjósum við hana yfir okkur trekk í trekk? Af hverju er níðst á hinum minni máttar? Af hverju eru þeir sem glíma við vonda geðheilsu málaðir útí horn? Af hverju er Ísland ekki fyrirmyndarsamfélagið?“

Glúmur endar færslu sína á þessum orðum:

„Ég er bálreiður. Það er ástæðan og ég ætla aldrei að láta það spyrjast út um mig að hafa þó ekki alla vega reynt að gera eitthvað í málunum. Þetta er hið hreinskipta svar.“