Ein dýrasta fasteign landsins hefur ekki selst eftir að hafa verið á sölu í rúma sjö mánuði.
Glæsihýsi Skúla Mogensen, fyrrum forstjóra WOW air, er enn til sölu samkvæmt sölusíðunni oceanvillaiceland.com sem er sérstaklega til að selja eignina, ekkert verð er gefið upp á síðunni.
Húsið er hannað af Steve Christer og Margréti Harðardóttur hjá Studio Granda og er fasteignamat hússins 261 milljón króna. Gríma Björg Thorarensen, unnusta Skúla, og Selma Ágústsdóttir sáu um innanhúshönnun.
Stundin greindi frá því að í desember 2018 hefði Skúli veðsett húsið fyrir 360 milljónir.