Gísli Marteinn Baldursson, sjónvarpsmaður og fyrrverandi borgarfulltrúi, syrgir nú hundinn sinn, Tinna, sem dó í gærmorgun eftir skammvinn veikindi.
Gísli Marteinn greinir frá þessu á Instagram-síðu sinni. Allir sem hafa misst gæludýr vita að það er ansi sárt enda myndast oft mögnuð tengsl milli manna og dýra.
Tinni var af tegundinni Golden Retriever og hafði hann fylgt Gísla Marteini í fjölmörg ár. Hann naut einnig vinsælda á Twitter og var með eigin síðu þar þar sem fylgjendur voru hátt í 700 talsins. Tinni var augljóslega í miklum metum hjá Gísla Marteini og hafa ófáar myndir birst af Tinna á Instagram-síðu Gísla Marteins í gegnum tíðina.
Í færslu sinni á Instagram segir Gísli Marteinn að Tinni hafi veikst fyrir þremur vikum og hann hafi kvatt í gærmorgun. „Hann var fallegasti og besti hundur sem ég hef kynnst og við söknum hans svo ótrúlega mikið.“
Hringbraut sendir Gísla og vinum Tinna samúðarkveðjur.