Ein elzta prentsmiðja og kassagerð landsins, Oddi, neyddist fyrir nokkru til að hætta framleiðslu á bylgju- og plastumbúðum, og þurfti að segja upp helmingi starfsmanna sinna, 86 manns. Á okkar mælikvarða var þetta gífurlega stór og alvarleg hópuppsögn.
Er við því að búast, að önnur iðnfyrirtæki, sem selja mest á innlendum markaði, líka auðvitað ferðaþjónustan, séu komin í svipaðan vanda, en uppdópað gengi krónunnar lækkar verð á innfluttri vöru, meðan það torveldar innlendum iðnfyrirtækjum, sem hafa líka sinn háa launakostnað, yfirkeyrðan fjármagnskostnað og lítinn markað, að keppa við innflutta, erlenda framleiðslu. Segir Ole Bieltvedt í grein sinni á visir.is.
Nánar á
http://www.visir.is/g/2018180609980/uppdopad-gengi-sedlabanka-veldur-vaxandi-usla-og-tjoni-