Gekk illa hjá tobbu marínós og kalla í þrjú ár: „sambandið varð miklu betra eftir það“

„Það er svo ótrúlegt hvað það er hægt að lappa upp á fólk sem lendir í erfiðleikum,“ segir Tobba Marinos um fjölskylduráðgjöfina sem hún og Karl Sigurðsson eiginmaður hennar fóru í. Tobba prýðir forsíðu Mannlífs og í samtali við miðilinn segir hún að mikilvægt sé að leita sér hjálpar komi upp erfiðleikar í sambandinu.

„Þegar við Kalli vorum búin að vera saman í tvö, þrjú ár gekk okkur mjög illa og margir hefðu bara sagt þetta gott, en þá ákváðum við að fara í fjölskylduráðgjöf og sambandið varð miklu betra eftir það. Ef maður hefur vit á að leita sér aðstoðar þá lagast hlutirnir oft.“

Hún kveðst fara reglulega til sálfræðings og viðurkennir að leita sér aðstoðar við ýmsa hluti. Hún segir:

„Strax og maður viðurkennir það og leitar sér hjálpar sér maður að hlutirnir geta orðið betri, eins og þegar gekk illa hjá okkur Kalla þá fannst mér mikið öryggi í því að sjá að það er hægt að laga hlutina. Það er svo óyfirstíganleg tilfinning sem fylgir því að halda að þetta verði bara alltaf svona, það lagist aldrei neitt.“

Aðspurð hvort ekki sé aukaálag á sambandið að vera þekktar persónur og stöðugt í sviðsljósinu svarar hún:

 „Ég held að það sem mestu máli skiptir sé að við berum mikla virðingu hvort fyrir öðru og hjálpumst alltaf að og ræðum hlutina. Það hefur aldrei komið upp neitt vandamál í sambandi við frægðina.“

Hér má lesa viðtalið í heild sinni.