Gekk berserksgang á Reykjanesbraut: „Það þarf nú bara að hringja í lögguna“ – Sjáðu ótrúlegt myndband

Myndband af býsna óvenjulegri uppákomu sem átti sér stað á Reykjanesbraut í gær gekk á milli fólks á netinu í gærkvöldi. Svo virðist vera sem kastast hafi í kekki milli tveggja ökumanna með þeim afleiðingum að ökumaður annarrar bifreiðarinnar missti gjörsamlega stjórn á skapi sínu.

DV fjallaði um myndbandið í gærkvöldi.

Á myndbandinu má sjá fremri bílinn reyna að koma í veg fyrir að aftari bíllinn komist fram úr. Það endar með því að báðir ökumenn stöðva bifreiðir sínar og fer ökumaður fremri bifreiðarinnar út og reynir að komast að hinum ökumanninum. Sparkar hann ítrekað fast í rúðuna bílstjóramegin.

Ekki liggur fyrir hvernig málið endaði en ljóst er að þó nokkrir ökumenn urðu vitni að uppákomunni. Á upptökunni heyrist fólk meðal annars furða sig á málinu: „Það þarf nú bara að hringja í lögguna,“ segir ein röddin.

Myndbandið sem DV birti má sjá hér að neðan.

Sparkar í glugga bíls á Reykjanesbrautinni.mov from DV Sjónvarp on Vimeo.