Söngvarinn og poppstjarnan Friðrik Dór Jónsson sagði í Tónatali á RÚV í vikunni að nýjasta lag hans, Segðu mér, fjalli um það þegar hann og núverandi eiginkona hans og barnsmóðir hættu saman um stutta stund.
„Þetta er byggt á því þegar ég og Lísa, sem mætti allt of seint í þennan sjónvarpsþátt en á hárréttum tíma inn í líf mitt, við hættum saman á tímabili,“ sagði hann í Tónatali og að það hafi verið alveg ofboðslega erfiður tími.
Lagið fjallar um næturheimsókn hans heim til Lísu, þegar þau eru hætt saman, þegar hann veltir því fyrir sér hvort að hann sé aldrei að fara að koma þangað aftur.
Lagið hefur verið mjög vinsælt og er búið að hlusta á það nærri 50 þúsund sinnum á YouTube og nærri 800 þúsund sinnum á Spotify.
Lagið er hægt að hlusta á hér að neðan og hægt er að heyra Friðrik Dór segja þessa sögu og syngja lagið í þættinum Tónatali hér.