Freyr Alexandersson, fyrrverandi aðstoðarþjálfari karlalandsliðsins í fótbolta, hefur sett einbýlishús sitt og konu sinnar, Erlu Súsönnu Þórisdóttur, á leigu. Freyr er að flytja til Danmerkur ásamt fjölskyldu sinni en hann tók nýlega við stjórnartaumunum hjá danska félaginu Lyngby.
Freyr og Erla eru Breiðhyltingar í húð og hár og hafa verið saman síðan þau voru táningar, en húsið sem um ræðir er við Rituhóla í Breiðholti og er einkar glæsilegt. Húsið leigist frá 1. ágúst næstkomandi til 1. ágúst 2022 með möguleika á framlengingu.
„Um er að ræða einstakt tveggja hæða 203fm hús með útsýni yfir Elliðaárdalinn og einnig beinan aðgang að dalnum (húsið leigist án bílskúrs). Á efri hæðinni er opið rými með hita í gólfum sem skiptist í stóra forstofu með baðherbergi, sjónvarpskrók, stór stofa ásamt borðstofu með stórbrotnu útsýni, eitt rúmgott svefnherbergi. Á efri hæðinni er sérsmíðað rúmgott HTH eldhús með uppþvottavél, ísskáp og tvöföldum ofni (ásamt örbylgjuofni) frá AEG,“ segir í færslu Erlu sem hún dreifði á Facebook.
Í færslunni kemur fram að á neðri hæðinni séu þrjú rúmgóð svefnherbergi, þar af tvö með stórum fataskápum, stórt baðherbergi með baðkari og sturtu. Þar er einnig að finna rúmgott þvottahús með þvottavél og þurrkara, litla geymslu og forstofu með aðgengi út í garð.
„Falleg aðkoma er að húsinu og það er stór pallur að framanverðu. Fyrir neðan húsið er stór og gróðursæll garður. Stutt er í alla þjónustu t.d. heilsugæslu, leikskóla, grunnskóla, framhaldsskóla, matvöruverslun, apótek, bókasafn og sundlaug. Húsið er innst í botnlanga í rólegri og vinalegri götu. Frábærir nágrannar eru í götunni,“ segir í færslunni en leiguverð er 350 þúsund krónur án hita og rafmagns.
Freyr þykir í hópi efnilegustu knattspyrnuþjálfara Íslands en hann hefur náð góðum árangri á undanförnum árum þrátt fyrir að vera enn tiltölulega ungur að árum. Freyr þjálfaði íslenska kvennalandsliðið í fimm ár og var aðstoðarþjálfari Eriks Hamrén hjá karlalandsliðinu. Freyr þótti einnig lunkinn leikmaður á sínum yngri árum en hann lék allan sinn feril sem varnarmaður hjá Leikni.