Fólk virðist almennt sammála því að fullt tilefni hafi verið til að ráðast í tilslakanir á sóttvarnarreglum sem taka gildi á miðnætti. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra tilkynnti tilslakanirnar eftir ríkisstjórnarfund í gær.
Samkomutakmarkanir munu miðast við 20 manns í stað 10 áður og þá munu sundstaðar og líkamsræktarstöðvar opna aftur, en þó með 50% af leyfilegum hámarksfjölda. Þá munu krár opna á nýjan leik en þó aðeins til klukkan 21 svo eitthvað sé nefnt.
Fréttablaðið spurði fylgjendur sína á Instagram eftirfarandi spurningar:;
Ertu sammála tilslökunum á sóttvarnarreglum?
Skemmst er frá því að segja að 69% svarenda sögðust fylgjendi tilslökununum á meðan 31% sögðust andvígir. Rúmlega 1.500 einstaklingar höfðu greitt atkvæði í morgun.