Fjölnir sár yfir því að lögreglunni var hafnað: „Þetta urðu mér auðvitað viss vonbrigði“

Lögreglunni var hafnað þátttöku í Hinsegindögum. Frá þessu greinir Fjölnir Sæmundsson, formaður Landssambands lögreglumanna, í pistli sem birtist á Vísi í dag. Hann upplifir ákvörðunina sem vonbrigði.

„Ég spurðist því fyrir um hvort Landssamband lögreglumanna gæti með einhverjum hætti lagt sitt að mörkum til Hinsegindaga. Þegar ég bar þessa hugmynd upp varð ég strax var við ákveðna tortryggni hjá aðilum sem starfa að málefnum hinsegin fólks. Mér var vel tekið af öllum þeim sem ég ræddi við en var tjáð að þátttaka félags sem á einhvern hátt tengdist lögreglunni yrði líklega ekki vel séð inna hinsegin samfélagsins. Þetta urðum mér auðvitað viss vonbrigði,“

Þetta segir Fjölnir sem segir að þátttaka lögreglunnar hefði verið gott tækifæri til að veita hinsegin lögreglumönnum stuðning og gera þá sýnilega innan lögreglunnar.

„Margir virðast líta á lögregluna sem mjög einsleitan hóp sem er auðvitað ekki rétt heldur starfar þar fjölbreytur hópur fólks með mismunda kyn, kynhneigð, þarfir og langanir. Það eru mér auðvitað líka vonbrigði að hópur hinsegin fólks í samfélaginu skuli líta á lögregluna sem einhverskonar andstæðing sinn.“

Þá segist Fjölnir meðvitaður að áður fyrr hafi verið miklir fordómar gagnvart hinseigin fólki og hvetur til þess að lögreglan og hinsegin fólk endurnýi samband sitt. Þá segist hann öruggur með að stjórnendur lögreglunnar séu tilbúnir að biðjast afsökunar á framferði lögreglunnar í fortíðinni.

„Auðvitað er ég ekki svo blindur eða gleyminn að ég viti ekki að mjög víða í samfélaginu hafa á síðustu árum og áratugum verið fordómar gagnvart hinsegin fólki, bæði hjá ýmsum ríkisstofnunum og hjá einstaklingum í samfélaginu og því má telja fullvíst að líka hafi verið fordómar meðal sumra lögreglumanna í gegnum tíðina. En ég hafði á einhvern hátt í einfaldleika mínum talið mér trú um að þeir tímar væru liðnir og samskipti lögreglu við hinsegin fólk undanfarin ár hefðu ekki gengið verr eða betur en við aðra borgara landsins. Þó ég sé ekki í stöðu til þess að lofa því þá er ég alveg sannfærður um að stjórnendur lögreglunnar í dag eru tilbúnir að biðjast afsökunar á framferði lögreglunnar þegar hún hefur brotið á fólki vegna kynhneigðar þess. Til þess að græða slík sár mætti til dæmis safna slíkum sögum saman til að læra af þeim og fá þá sem telja að brotið hafi verið á til að segja sína sögu. Fyrir slíku fyrirkomulagi eru nokkur fordæmi hér innanlands og erlendis.“

Fjölnir endar skrif sín síðan á þessum orðum:

„Það er einlæg von mín og trú að hinsegin samfélagið og lögreglan taki höndum saman í baráttunni fyrir jafnara samfélagi þar sem hinsegin fólk nýtur nákvæmlega sömu viðhorfa og þjónustu allir aðrir, bæði innan lögreglunnar og út í samfélaginu.“