Felix niður­lægður með homma­brandara á sjó­manna­dags­há­tíð: „Mér leið sannast sagna ömur­lega“

Felix Bergs­son steig fram í dag og rifjaði upp heldur miður at­vik á sjó­manna­dags­há­tíð er hann var veislu­stjóri. Ástæða þess að hann nefnir þessa hluti í dag er við­tal Frétt­vaktarinnará Hring­braut við Gyðu Margréti Péturs­dóttur, doktor í kynja­fræði, sem ræddi mál Flokks fólksins fyrir norðan.

Gyða sagði þar að það væri al­gengt að hlátur og grín séu al­geng fyrstu við­brögð við kyn­ferðis­legri á­reitni.

„Hún hló bara að þessu,“ sagði maðurinn. Já við hlæjum þegar okkur of­býður og stundum hefur maður ekki kraft til að standa upp og segja eitt­hvað,“ skrifar Felix á twitter.

„Einu sinni var ég kynntur inn sem veislu­­stjóri á sjó­manna­­dags­há­­tíð með þeim við­bjóðs­­legasta homma"brandara" sem ég hef heyrt (kúkur, blóð og allt..) Ég gekk inn á sviðið undir hlátra­sköllum prúð­búinna gestanna og já, hló með. En mér leið ekki vel. Mér leið sannast sagna ömur­­lega. Niður­­lægður. Samt sagði ég ekki neitt og fór bara að keyra mitt prógramm. Annar dagur í vinnunni,“ heldur Felix á­fram.