Ferðatími borgarbúa mun lengjast um 5.882 klukkustundir á dag miðað við aðgerðaáætlun borgarinnar um aukið umferðaröryggi og lækkun hámarkshraða. Þetta segir Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn, í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag.
„Nýjasta útspil vinstrimanna og Viðreisnar í borginni er að þrengja enn frekar að umferð og lengja ferðatíma fólks. Afleiðingarnar eru miklar. Raunveruleg hætta er á að umferðin leiti meira inn í íbúðahverfi þegar þrengt er að helstu samgönguæðunum. Svo er það hitt. Fólk þarf að vera lengur í bílum og hefur minni tíma aflögu í annað,“ segir Eyþór í grein sinni og vitnar í tölur úr áætlun borgarinnar sjálfrar.
Segir Eyþór að ferðatími fólks muni lengjast um 5.882 klukkustundir á dag, eða 200.000 vinnudaga á ári. „Um 1.000 vinnuár í aukinn ferðatíma fólks í Reykjavík á ári hverju. Þetta mun gerast á sama tíma og talað er um að stytta vinnuvikuna.“
Eyþór segir að tími fólks sé verðmætur þó það sé álitamál hvernig tíminn sé metinn til fjármuna. Hann bendir á að meðallaun séu rúmlega 600 þúsund á mánuði og miðað við forsendur borgarinnar sé þessi viðbótarferðatími ígildi kostnaðar upp á átta milljarða króna á ári.
„Það þýðir þjóðhagslegan kostnað upp á 320 milljarða á 40 árum. Verðtryggt. Það er umhugsunarefni hvernig sami borgarstjórnarmeirihlutinn getur lagst gegn nauðsynlegum úrbótum í ljósastýringu, sem enn hafa ekki orðið, og fer hægt í að bæta snjallvæðingu og lýsingu gangbrauta vegna kostnaðar. En slengir svo fram fimm ára áætlun um að lengja ferðatíma fólksins í borginni um eitt þúsund vinnuár. Sparar við sig hagkvæmar úrbætur í öryggismálum en hikar ekki við að leggja aukabyrðar á fólkið með töfum og kostnaði. Er ekki kominn tími til að tengja?“