Erna Ýr: „Ég átti ekki von á því að þetta yrði svona slæmt“

Erna Ýr Öldudóttir er nýjasti gesturinn í podcasti fjölmiðlamannsins Sölva Tryggvasonar. Í viðtalinu er víða komið við og ræðir Erna meðal annars um frægan borgarafund um loftslagsmál á RÚV fyrir þremur árum. Erna var þar á öðru máli en meirihluti þeirra sem tóku þátt í umræðunum og var gengið býsna hart að henni í þættinum og eftir hann. Erna segist hafa vitað út í hvað hún var að fara:

„Ég áttaði mig á því að þetta yrði líklega svona þegar ég sá að við vorum 2 á sömu línu á móti 12, þannig að það var ekki neitt jafnvægi í því. Þá fattaði ég að þættinum væri stillt upp til að jaðarsetja mig og Magnús Jónsson, fyrrverandi veðurstofustjóra, út úr umræðunni. Þannig að ég átti svo sem alveg von á því að fá ekki sanngjarna meðferð, en ég átti ekki von á því að þetta yrði svona slæmt. Þegar það var slökkt á myndavélunum var fólk mjög tilfinningalegt og það var maður sem kom til mín og bauð mér að koma í endurmenntun. Þetta var lífsreynsla á ákveðinn hátt.”

Erna, sem hefur oft vakið athygli fyrir að halda á lofti skoðunum sem eru umdeildar, segist í þættinum mjög meðvituð um að hún sé ekki allra og að það sé í góðu lagi:

„Það eru margir hneykslaðir á því sem ég segi stundum, en það er allt í lagi.

Ég átta mig á því að ég er oft að halda úti skoðunum sem eru ekki endilega vinsælar og fólk má alveg hafa skoðanir á mér. Ég ætla ekki að gera öðrum upp annarlegar hvatir, enda vil ég ekki að aðrir geri það við mig. En við mættum stundum öll hugsa að það er mjög gott að eiga í rökræðum við þá sem eru ósammála manni. Annars lærir maður ekki neitt. Við erum komin á skrýtinn stað ef allir eiga að hafa sömu skoðun.“

Erna Ýr segir dyggðaskreytingar orðnar mjög algengar á Íslandi og að við lifum á tímum þar sem ásýnd sé oft miklu ofar á lista en raunverulegar aðgerðir:

„Við lifum á tímum ódýrra dyggða. Þú þarf ekki að vera góð manneskja, þú þarft bara að líta út fyrir að vera góð eða góður. Með því að hafa réttu skoðanirnar, kaupa réttu vörurnar eða segir það sem hljómar vel. En þú þarft ekki að leggja neitt á þig eða framkvæma neitt, bara láta stöðugt vita að þú sért í rétta liðinu. Það er miklu erfiðara að vera góður en að líta út fyrir að vera góður. Það er hægt að nota mjög ódýrar leiðir með samfélagsmiðlum til að leggja allt í að líta vel út.”

Hún er einnig á því að við lifum á tímum of mikillar fórnarlambavæðingar:

„Fólk getur fengið mikla athygli og samúð og lamið á öðrum með því að auglýsa sig sem fórnarlömb. Til þess að vera fórnarlamb á samfélagsmiðlum þarf maður ekki að hafa lagt neitt á sig eða gert neitt, heldur þarf maður bara að lenda í einhverju. Lífið er bara þannig að við lendum öll í einhverju. Lífið er oft erfitt fyrir okkur öll og það er ekkert endilega neitt merkilegt að hafa lent í einhverju. Það er hluti af lífinu. Það fólk sem við lítum upp til er oft á tíðum fólk sem tekst á við erfiðleikana af reisn og þarf ekki að auglýsa sig sem fórnarlamb. Með þessu er ég alls ekki að segja að fullt af hlutum þarfnist ekki umræðu. Auðvitað þarf að laga margt og við eigum að ræða hluti. En við erum komin býsna langt í því að fólk sé að sækja sér athygli út á það að vera fórnarlömb.“

Þáttinn með Ernu og alla aðra þætti Sölva Tryggvasonar má nálgast á heimasíðunni: solvitryggva.is