Enn frekari veður­breytingar í kortunum – Snjó­komu­bakkinn á ferðalagi

Samkvæmt Veðurstofu Íslands verðu hæg­lætis veður framan af í dag, en sums staðar él fyrir norðan og allra syðst. Í hug­­leiðingum veður­­fræðings kemur fram að undir kvöld færist snjó­komu­bakki yfir Suð­austur­land.

Í gær hafði tals­verðri snjó­komu verið spáð á Suður­landi og á höfuð­­borgar­­svæðinu en veður­­fræðingur segir að svona geti spárnar breyst.

„…telst þetta til minni­háttar breytinga þótt það hafi mikil á­hrif á okkur sem búum á Höfuð­­borgar­­svæðinu.“

Í dag verður norð­læg átt, víða 3 til 10 metrar á morgun. Dá­lítil él á víða og dreif, en bætir í vind með kvöldinu. Frost er á bilinu 1 til 13 stig og er kaldast í inn­sveitum norð­austan­lands, en sums staðar frost­laust syðst.

Veður­horfur á landinu næstu daga

Á laugar­­dag:

Norð­vestan 5-13 m/s og snjó­koma með köflum á vestan­verðu landinu, en lík­­lega þurrt allra vestast. Hæg suð­læg átt og úr­­komu­lítið austan til. Frost víða 0 til 5 stig, en frost­­laust við suður­­ströndina. Styttir upp vestan til undir kvöld, en fer þá að snjóa fyrir austan og kólnar í veðri.

Á sunnu­­dag:

Norð­læg átt víða, 3-10 m/s. Stöku él, einkum syðst og austast, annars víða bjart­viðri. Frost 2 til 13 stig, kaldast inn til landsins.

Á mánu­­dag:

Hæg breyti­­leg átt, yfir­­­leitt létt­­skýjað og tals­vert frost, en austankaldi, stöku él og mildara syðst.

Á þriðju­­dag:

Austan­­strekkingur og skýjað, en él syðst og austast og á­­fram frost víðast hvar.

Á mið­viku­­dag og fimmtu­­dag:

Út­lit fyrir austan­átt, víða dá­­lítil él og á­­fram svalt í veðri.