Engilbert úrskurðaður gjaldþrota

Engilbert Runólfsson, sem var dæmdur fyrir stórfelld skattsvik og peningaþvætti í janúar, hefur verið úrskurðaður gjaldþrota. Þetta kemur fram í Lögbirtingarblaðinu í dag.

Engilbert var ákærður í sumar var fyrir skattsvik og peningaþvætti og játaði hann brot sín fyrir Héraðsdómi Vesturlands. Hann var í kjölfarið dæmdur í tíu mánaða skilorðsbundið fangelsi og þurfti hann að greiða 58 milljóna sekt innan fjögurra vikna, ella sæta fangelsi í eitt ár.

Engilbert var sakaður um að hafa ekki staðið skil á virðisaukaskatti á sex mánaða tímabili árið 2017 og 2018. Skattsvik Engilberts námu um 23 milljónum króna. Hann hefur ítrekað komist í kast við lögin og hefur áður verið fundinn sekur um brot gegn umferðarlögum, fíkniefnalagabrot, brot gegn skotvopnalöggjöfinni, hylmingu og skjalafals. Hann hefur síðastliðin ár verið umsvifamikill í viðskiptalífinu og farið fyrir fjölda verktakafyrirtækja.

Héraðsdómur Vesturlands úrskurðaði þann 12. maí síðastliðinn að bú Engilberts yrði tekið til gjaldþrotaskipta.