Elísabet Guðmundsdóttir, talskona gegn sóttvörnum, segir í færslu á Facebook að hún hafi orðið fyrir einelti lögreglu síðustu vikur. Lögregla hafi haft afskipti af henni fimm sinnum af tilbúnum orsökum, að hennar sögn, og þá hefur hún verið handtekin einu sinni.
Hún segir að lögregla hafi til dæmis haft afskipti af henni „vegna gruns um að hafa ekið of hægt af stað á grænu ljósi og vegna gruns um að hafa hugsanlega ætlað inn í verslun án grímu“.
Hún segir að hún hafi verið handtekin fyrir rúmlega viku síðan af fimm lögreglumönnum á þremur lögreglubílum og furðar sig á að svo marga hafi þurft til að sækja hana í skýrslutöku sem hún átti að mæta í. „Þrátt fyrir að hafa sagt ok ég kem eftir að hann tekur af mér síma og bílbelti þar sem ég sit inni í bílnum, draga 4 lögreglumenn mig út úr bílnum, þrýsta mér upp að bílnum mínum með hendur fyrir aftan bak og handjárna mig,“ skrifar Elísabet.
„Skýrslutakan tók 3 klukkustundir og klukkan 02.30 stend ég ein úti á götu fyrir utan lögreglustöðina á kaldri og myrkri vetrarnóttu eftir hrottalega handtöku, eftirlýst vegna skýrslutöku. Ég hafði hringt í lögfræðinginn minn um leið og ég sá bláu ljósin, hann sagði mér að gera það sem lögreglan bæði um og þar sem hann kom ekki á lögreglustöðina hafði ég setið ein í 3 klukkutíma, þann fyrsta handjárnuð fyrir aftan bak með poka yfir höfðinu umkringd 5 lögreglumönnnum með grimur og i fullum skrúða.“
Hótað ofbeldi
Hún segir að þjóðin sem hún hafi staðið upp fyrir grýti sig nú og dæmi án þess að skoða samhengið. „Þjóðin mín grýtir mig og hótar mér enn meira ofbeldi, sumir jafnvel að nauðga mér og aðrir grýta heimili mitt með eggjum, og njóta þess að horfa á yfirvöld eyðileggja líf mitt og barna minna, en ég hef meðvitað sett það sem ég hef orðið fyrir á netið til þess að sýna ofbeldið sem ég er beitt,“ segir hún.
Þá segir hún óteljandi Íslendinga hafa lent í mun verra ofbeldi yfirvalda en hún og það sé henni óskiljanlegt hvernig Íslendingar séu hissa á að hún hafi grátið við handtökuna. „Óteljandi Íslendingum finnst konan og læknirinn sem er ekki einu sinni sektuð fyrir umferðarlagabrot eigi skilið að lögregla elti hana uppi líkt og um vopnaðan forhertan glæpamann sé að ræða til að taka skýrslu vegna gruns um að hafa brotið reglur sem þar að auki eru ólöglegar.“
Þeir eru margir íslendingarnir sem grýta mig og taka þátt í mannorðsmorði yfirvalda á mér. Aldrei hefði ég trúað því...
Posted by Elisabet Gudmundsdottir on Saturday, 16 January 2021