Elísa orð­laus: Um­slagi rennt inn bréfa­lúguna í gær­kvöldi – Táraðist þegar hún opnaði það

Elísa Elínar, ung ein­stæð móðir, var orð­laus þegar hún opnaði um­slag sem rennt var inn um bréfa­lúguna á heimili hennar í gær­kvöldi. Elísa segir frá þessu í færslu á Face­book sem hún gaf Hring­braut góð­fús­legt leyfi til að fjalla um.

Í um­slaginu var inn­eignar­kort í Bónus og segir Elísa að á kortinu hafi verið inn­eign fyrir 20 þúsund krónur. Sannar­lega eitt­hvað sem kemur sér vel fyrir unga og ein­stæða móður núna rétt fyrir jólin.

Elísa segir að um­slaginu hafi verið rennt inn um lúguna og svo dinglað á bjölluna. Sá sem gaf henni gjöfina var á bak og burt þegar hún opnaði og því hefur hún ekki hug­mynd um hver var þarna að verki. Hún segir við Hring­braut að lík­lega hafi þarna verið ein­hver að verki sem er náinn henni og sonum hennar. Enginn hefur gefið sig fram en á um­slaginu stendur:

Til: Elísu ofur­konu
Frá: Ein­hverjum sem trúir á þig!

Í færslu sinni í gær­kvöldi segist Elísa hafa verið með tárin í augunum yfir þessum skila­boðum og þessari gjöf. „Ég veit ekki hver gerði þetta og get því ekki þakkað fyrir mig en hver sem þú ert - TAKK svo inni­lega fyrir þessi skila­boð og að létta undir hjá mér. Vá hvað það er til hjarta­hlýtt og fal­legt fólk. Ég mun klár­lega taka þetta góð­verk mér til fyrir­myndar.“