„Ekki í nokkrum vafa um niðurstöðu slíkrar rannsóknar“

Jón Hjaltason, sagnfræðingur og fulltrúi Flokks fólksins í skipulagsráði Akureyrarbæjar, segist vera tilbúinn að víkja úr ráðinu að nokkrum skilyrðum uppfylltum.

Jón sagði sig úr flokknum á dögunum auk oddvitans Brynjólfs Ingvarssonar. Þá var Hjörleifur Hallgrímsson varabæjarfulltrúi rekinn úr flokknum. Málið komst í hámæli eftir að þrjár konur úr flokknum fyrir norðan báru þremenningana þungum sökum í yfirlýsingu sem þær sendu frá sér.

„Við hlustuðum og þetta heyrðum við“

Í aðsendri grein í Fréttablaðinu í dag fer Jón yfir málið eins og það blasir við honum.

„Inga Sæland kallar mig svikara. Ég er sammála henni um forsendur alhæfingarinnar. Pólitískt kjörinn fulltrúi fylgir sínum flokki ella víkur hann úr störfum á hans vegum og eftirlætur þau öðrum. Þar með er ég kominn í mótsögn við sjálfan mig og skulda kjósendum skýringar á þeirri ákvörðun minni að sitja sem fastast í skipulagsráði Akureyrarbæjar,“ segir hann.

Jón fer svo yfir málið og vísar í yfirlýsingu þeirra Málfríðar Þórðardóttur, Tinnu Guðmundsdóttur og Hannesínu Scheving Virgild Chester um kynferðislega áreitni og andlegt ofbeldi. Hann segir að Guðmundur Ingi Kristinsson, varaformaður flokksins, hafi staðhæft að honum hafi ítrekað borist fréttir af „niðrandi og fyrirlitlegri framkomu“. Þá hafi Inga Sæland, formaður flokksins, álasað þeim fyrir að hafa „aldrei hlustað á hvað konunum leið illa“ en Jón segir að það sé ekki rétt hjá Ingu.

„Við hlustuðum og þetta heyrðum við. Þann 11. júní er haldinn fundur norðan heiða. Inga Sæland er viðstödd. Við Brynjólfur Ingvarsson, oddviti Ff á Akureyri, fáum orð í eyra fyrir að hafa ekki staðið okkur þegar kom að skipun í nefndir á vegum bæjarins. Gagnrýnin er réttmæt. Við játum mistök. Fundinum lýkur í mikill eindrægni og sátt. Inga Sæland minnir á að það sé mannlegt að gera mistök. Ekki orð um meint kynferðislega áreitni hvað þá svæsið einelti.“

Enginn minntist á áreitni eða einelti

Hann segir að tveimur mánuðum síðar, 14. ágúst, hafi þingnmaðurinn Jakob Frímann stýrt vel heppnaðri skemmtun flokksins í Lystigarðinum. Inga Sæland hafi komið og tekið lagið og allir verið glaðir. Þau tvö hafi rætt saman stund og Inga meira að segja rætt enn lengur við Hjörleif Hallgríms. „Enginn minnist á kynferðislega áreitni né heldur svæsið einelti.“

Jón segir að svo hafi eitthvað gerst þriðjudaginn 6. september.

„Inga Sæland talar við mig í síma og úthúðar Brynjólfi Ingvarssyni. Fyrir honum vaki það eitt að sundra og grafa undan flokknum, hann sé „andsetinn af Halldóri í Holti“ – hennar orð – en þeir tveir hafi bruggað henni launráð um nokkurt skeið. Í máli sínu kemur hún að því oftar en einu sinni að stjórn Ff muni funda seinna þennan sama dag og þar verði Brynjólfi gerðir tveir kostir, að fara strax í veikindaleyfi annars verði hann rekinn úr flokknum.“

Jón segir að þrátt fyrir að þetta samtal hafi staðið drjúga stund hafi hún ekki minnst einu orði á kynferðislega áreitni né svæsið einelti sem konurnar þrjár hafi mátt sæta.

„Þennan sama dag heimta áðurnefndar þrjár konur að við fundum – þetta er vissulega fyrir fram ákveðinn fundardagur – en Brynjólfur getur ekki mætt og ég þykist vita hvað sé á seyði. Fer því fram á frestun með þessu skeyti: „Gagnrýnum hann [Brynjólf] augliti til auglitis en ekki að honum fjarstöddum, að því er lítill manndómsbragur.“ Þrátt fyrir þessi frýjunarorð fallast þær ekki á frestun.

Ekki í nokkrum vafa

Jón segir að enn og aftur ekki komi ekki orð um kynferðislega áreitni eða ofbeldisfulla hegðun þeirra Brynjólfs síðan „snemma í vor.“

„Seinna í vikunni er fundað. Málfríður heldur tölu um hvað henni þyki vænt um Brynjólf og hafi miklar áhyggjur af heilsufari hans. Þegar Málfríður víkur sér ítrekað undan að svara spurningu sem snýr að heiðarleika í samskiptum ber undirritaður í borð. Málfríður Þórðardóttir víkur í ræðu sinni ekki einu orði að kynferðislegri áreitni né einelti. Er þó kominn 10. september og konurnar þrjár þá mánuðum saman átt í „einstaklega taugatrekkjandi“ samstarfi við mig sem olli „okkur öllum ómældri vanlíðan og kvíða“, segja þær fullum fetum.“

Hann segir svo að örfáum dögum síðar, eða þann 13. september sé  þó þetta tvennt; kynferðisleg áreitni og lúalegt einelti, orðið það sem þessari „ónefndri karlaforystu“ flokksins á Akureyri er gefið að sök og Guðmundi Inga varaformanni Ff „ítrekað borist fregnir af“.

„Við hin „ónefnda karlaforysta“ komum hins vegar af fjöllum. Þessar sakargiftir höfðu aldrei fyrr verið nefndar í okkar eyru, Inga Sæland aldrei reynt sættir eins og hún vill þó vera láta, hvað þá að varaformaðurinn hafi borið þessar ávirðingar undir okkur áður en hann hleypti þeim í loftið fyrir alþjóð að sjá.“

Jón segir að hver verði að dæma fyrir sig en í hann sé hlaupin kergja.

„Ég skil hins vegar gagnrýni Ingu Sæland og er reiðubúinn að víkja ef stjórn flokksins hrindir í framkvæmd eigin samþykkt um að skipa hlutlausa rannsóknarnefnd er fari ofan í kjölinn á þessu máli. Síðan verði haldinn blaðamannafundur í húsakynnum Flokks fólksins þar sem konurnar þrjár, formaður og varaformaður játi mistök, biðjist afsökunar og dragi allan ósómann til baka – því ég er ekki í nokkrum vafa um niðurstöðu slíkrar rannsóknar.“