Ekkert spurst til Arnars síðan í septem­ber

Lög­reglan á Austur­landi lýsir eftir Arnari Sveins­syni, 32 ára karl­manni, en ekkert hefur spurst til hans síðan í septem­ber síðast­liðnum.

Í til­kynningu frá lög­reglu kemur fram að Arnar sé um 185 sentí­metrar á hæð, grann­vaxinn, rauð­hærður og var með sítt hár, rautt skegg og gler­augu. Vitað er að hann fór til Þýska­lands í ágúst síðast­liðnum þar sem hann fór til Ber­línar.

Ef ein­hver getur gefið upp­lýsingar um ferðir Arnars síðan í septem­ber er við­komandi beðinn um að hafa sam­band við rann­sóknar­deild lög­reglunnar á Austur­landi í síma 444-0650 eða net­fangið: rann­soknaustur@log­reglan.is