Fjölmiðlamaðurinn Eiríkur Jónsson þykir býsna þefvís á skemmtilega fréttapunkta og á vef sínum, Eiríkur Jónsson.is, afhjúpar hann Brynjar Níelsson, nýskipaðan aðstoðarmann Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra.
Eins og frægt er orðið tilkynnti Brynjar á dögunum að hann væri hættur á Facebook vegna nýja starfsins.
„Jæja, nú þarf ég að kveðja fésbókina tímabundið. Í nýju djobbi er ekki gert ráð fyrir ábyrgðarlausu glensi á samfélagsmiðlum,“ sagði Brynjar síðastliðinn fimmtudag.
Hann virðist þó enn kíkja af og til á Facebook og setja læk við einn og einn status eins og bent er á í frétt Eiríks. Brynjar setti nefnilega læk við færslu Björns Bjarnasonar, fyrrverandi dómsmálaráðherra Sjálfstæðisflokksins, en þar gagnrýndi Björn einmitt fréttaflutning RÚV af málefnum dómsmálaráðherra og undirskriftasöfnun til höfuðs honum.