Einka­mála­aug­lýsing vekur kátínu: „Áttu dóttur sem gengur ekki út?“

Einka­mála­aug­lýsing í Bænda­blaðinu hefur vakið mikla um­ræðu í Face­book hópnum Fyndir Frændur.

„Ertu stór­bóndi á Suður­landi? Áttu dóttir sem gengur ekki út? Hand­laginn smiður úr Hafnar­firði á þrí­tugs­aldri leitar eftir kynnum við kampa­káta bónda­dóttur. Á­huga­samir hafi sam­band í hfjsmidur@gma­il.com, gaman ef mynd fylgir,“ segir í aug­lýsingunni.

Ekki er vitað hvort um grín sé að ræða en verður það að teljast lík­legt. Það yrði ekki í fyrsta skipti sem vinir setja inn grín í Einka­mála­dálkinn í fjöl­miðlum en aug­lýsingin er hins vegar heldur ekki það skrýtnasta sem hefur birst þar af fúlustu al­vöru.

Mun þetta ekki vera í fyrsta skipti sem Hringbraut fjallar um einkamálaauglýsingar í Bændablaðinu en hægt er að sjá nokkrar hér að neðan eða lesa um þær hér.