Einföld skúffukaka í hrekkjavökubúningi

Skúffukaka er sú tegund köku sem flestir kunna vel að meta og er klassísk þegar að köku kemur. Nú styttist óðum í hrekkjavökuna en hún verður sunnudaginn 31.október næstkomandi. Þá er gaman að gleðja börnin með kökum skreytum í anda hrekkjavökunnar. Hér er Berglind Hreiðars, einn af okkar vinsælustu matar- og kökubloggurum landsins, búin að setja einfalda skúffuköku í hrekkjavökubúning.

„Það má síðan sannarlega skreyta þessa dásamlegu skúffuköku eftir tilefni og nú þegar Hrekkjavakan nálgast var gaman að leika sér með beinagrindahlaup og Oreo til að búa til „mold“ yfir kremið.“segir Berglind um nýjustu útgáfuna af skúffukökunni sinni. Hægt er að skreyta þess að vild og velja það sem hverjum og einum þykir best. Hægt er að fylgjast með Berglindi á vefsíðu hennar Gotteri og gersemar

M&H Skúffukaka 2.jpg

Einföld skúffukaka

250 g hveiti

130 g Cadbury bökunarkakó

290 g sykur

100 g púðursykur

1 ½ tsk. lyftiduft

1 ½ tsk. matarsódi

¾ tsk. salt

290 ml súrmjólk

220 ml ljós matarolía

3 egg

2 tsk. vanilludropar

290 ml sjóðandi vatn

  1. Hitið ofninn í 180°C.
  2. Blandið öllum þurrefnum saman í hrærivélarskálina.
  3. Pískið næst saman súrmjólk, matarolíu, egg og vanilludropa í annarri skál og hellið síðan vatninu saman við og pískið áfram.
  4. Hellið súrmjólkurblöndunni saman við þurrefnin og hrærið saman á lágum hraða, skafið niður á milli og hrærið þar til vel blandað. Deigið er frekar þunnt og þannig á það að vera.
  5. Smyrjið skúffukökuform vel að innan og hellið deiginu í formið.
  6. Bakið í um 35-40 mínútur eða þar til prjónn kemur út með smá kökumylsnu á endanum en ekki blautu deigi.
  7. Kælið kökuna alveg áður en þið setjið kremið á.

Krem

320 g smjör við stofuhita

70 flórsykur

70 g Cadbury bökunark

140 g brætt suðusúkkulaði

2 tsk. vanilludropar

3 msk. uppáhellt kaffi

¼ tsk. salt

  1. Þeytið smjörið þar til létt og ljóst, skafið niður á milli.
  2. Bætið flórsykri og bökunarkakó næst saman við í nokkrum skömmtum og þeytið aðeins áfram.
  3. Bætið nú öðrum hráefnum saman við, þeytið vel og skafið niður á milli.
  4. Smyrjið kreminu jafnt yfir kökuna áður en þið skreytið.

Skraut

8 Oreokökur, muldar í blandara

5 pokar BUBS hlaup að eigin vali

  1. Dreifið út Oreoduftinu yfir kremið og raðið síðan BUBS um alla köku.
M&H Skúffukaka 3.jpg

Svo einföld, silkimjúk og ótrúlega góð./Ljósmyndir Berglind Hreiðars.

*Allt hráefnið fæst í Bónus