Einar Þorsteinsson, spyrill í Kastljósi, hefur verið gagnrýndur þó nokkuð á samfélagsmiðlum eftir viðtal við Má Kristjánsson, yfirlækni smitsjúkdómadeildar Landspítalans, í gærkvöldi.
Umræðuefni viðtalsins var bráðabirgðaskýrsla Landspítalans um hópsmitið sem kom upp á Landakoti í haust. Í skýrslunni var meðal annars fundið að ófullnægjandi búnaði, slæmri loftræstingu og þröngum húsakosti og spurði Einar meðal annars hvort þetta væru fullnægjandi skýringar.
Ráðist á starfsfólkið
Eins og Hringbraut greindi frá í gærkvöldi gagnrýndi Guðmundur Gunnarsson, fyrrverandi formaður Rafiðnaðarsambandsins, Einar harðlega og sagði að hann hefði oft lagst lágt í Kastljósi en aldrei eins og í gærkvöldi. Þótti Einar sauma full hart að Má og sagði Guðmundur að Einar hefði valið að ráðast á starfsfólkið en ekki þá sem hafa farið með fjárveitingarvald og ítrekað frestað byggingu nýs Landspítala.
Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingar, lagði einnig orð í belg á Facebook-síðu sinni, en athygli vekur að Einar svaraði Helgu Völu og skiptust þau á nokkrum orðum undir færslu þingkonunnar.
Einar svarar fyrir sig
„Ég er bæði orðlaus og rasandi eftir áhorf á Kastljós rétt í þessu. Þetta var held ég nýtt met,“ sagði Helga Vala. Einar blandaði sér í umræðurnar í þræðinum og sagði meðal annars:
„Í þætti kvöldsins var einfaldlega boðið upp á spurningar um hvort að það sé rétt ályktun af lestri skýrslunnar að engin mistök hafi verið gerð í viðbúnaði farsóttarnefndar LSH varðandi hópsmitið á Landakoti. Athyglisvert að þingmaðurinn skuli taka það svona nærri sér.“
Helga Vala svaraði að bragði og sagði að það hefði ekki verið spurningin þegar þráspurt var, með framígripum, hvers vegna ekki var gætt betur að sóttvörnum og hvort það væri á starfsfólk leggjandi að eiga það á hættu að smita.
„Hverju átti hann að svara? Vildi spyrillinn fá svarið: „Sjúklingarnir hefðu betur verið lokaðir inni án umönnunar starfsfólks” eða „Við hefðum betur látið starfsfólkið dvelja á spítalanum”. Þegar skýrslan er lesin virðast einmitt ekki hafa verið gerð mannleg mistök heldur kerfisgalli - ófullnægjandi húsnæði og aðstæður. Hvað eiga starfsfólkið og yfirmenn að gera í því? Neita að mæta í vinnuna til að sinna sjúklingum?“
Helga Vala sagði að líklega þyrfti að spyrja íslenska kjósendur hvers vegna þeir velja ítrekað stjórnmálaflokka sem setja ófullnægjandi fjármagn í þetta grunnkerfi okkar. „Eða kannski spyrja fjármálaráðherra hvort hann telji þetta mögulega vera á ábyrgð þeirra sem skammta fjármagni? Eigum við að prófa það Einar?“
Allt eðlilegar spurningar
Einar svaraði þessu og sagðist ekki hafa verið að biðja um nein tiltekin svör. „Þú veist betur en að vera að hjóla í spyrilinn. Þetta voru allt eðlilegar spurningar um grafalvarlegt mál. Og ég var bara mjög kurteis og greip lítið frammí. Svo kemur Landlæknir með sína skýrslu og vonandi verður hún til gagns.“
Helga Vala sagði að spurningarnar hefðu verið þess eðlis að einungis tvö svör voru í boði. „Svipað og „ertu hættur að berja konuna þína” spurningin,“ sagði hún og benti Einari á að lesa færslu sem Gunnar Skúli Ármannsson, svæfinga- og gjörgæslulæknir, skrifaði eftir þátt gærkvöldsins og Fréttablaðið fjallaði meðal annars um. Í færslunni sagði Gunnar Súli að ef allt hefði verið eðlilegt á Íslandi hefði nýr Landspítali verið opnaður með fullkomnum sóttvörnum árið 1985.
Einar svaraði þessum orðum Helgu Völu svona: „Meira ruglið. Af hverju í ósköpunum má ekki spyrja um gæði þessarar skýrslu? Og hvort stjórnendur séu að víkja sér undan ábyrgð? Hvort mistök hafi verið gerð? Til hvers heldurðu eiginlega að fjölmiðlar séu? Svo er það bara annað viðtal um fjársvelt heilbrigðiskerfi. Bæði Már og Páll hafa komið því sjónarmiði að. En í Kastljósi eiga þær spurningar betur við gagnvart ráðherra. Það kemur vonandi fljótlega.“
Fjörugar umræður hafa farið fram um viðtalið á Facebook-síðu Helgu Völu og sitt sýnist hverjum. Margir koma Einari til varnar og segja að hann hafi staðið sig vel í viðtalinu. Í þeim hópi er til dæmis tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens sem segir einfaldlega: „Mér fannst hann standa sig mjög vel.“