Einar segir af sér vegna kynlífshneykslis - „Sú hegðun er ófyrirgefanleg“

Einar Hermannsson hefur sagt af sér sem formaður SÁÁ vegna kynlífshneykslis, en hann játar að hafa svarað auglýsingu á netinu þar sem boðið var upp á kynlíf gegn greiðslu. Þetta kemur fram í yfirlýsingu hans um málið, en hann segist ekki ætla að tjá sig frekar um það.

„Fyrir nokkrum árum svaraði ég auglýsingu á netinu þar sem í boði var kynlíf gegn greiðslu. Sú hegðun er ófyrirgefanleg en ég taldi mér ranglega trú um að þau samskipti væru grafin og gleymd og þau hafa ekki haft áhrif á störf mín fyrir SÁÁ. Ljóst er hins vegar að umræða um þetta mál er einungis til þess fallin að varpa rýrð á SÁÁ ef ég sit þar áfram sem formaður.“ Segir Einar.

Hann segist iðrast gjörða sinna sérstaklega þar sem þetta valdi fjölskyldu hans sársauka, og biður alla sem málið varða afsökunar.

„Ég iðrast að hafa farið þessa leið og að hafa valdið fjölskyldu minni sársauka vegna hegðunar minnar. Bið ég alla þá sem málið varðar afsökunar á framferði mínu.“ segir í lok yfirlýsingar hans.