Eigið fé heimilanna var 5.517 milljarðar króna í lok ársins 2020, samkvæmt skattframtölum. Tölur fyrir árslok 2021 liggja enn ekki enn fyrir en ætla má að eigið fé heimilanna hafi aukist um 8% á síðasta ári sem var hækkun fasteignamats á höfuðborgarsvæðinu.
Þetta kemur fram í blaðinu Fjármál og ávöxtun sem kom út fyrir helgi og sagt verður meðal annars frá í þættinum Stjórnandinn með Jóni G. á Hringbraut kl. 21 og 23 í kvöld.
Fyrir utan umfjöllun um helstu niðurstöður blaðsins eru í tilefni sumarkomunnar birt stutt og hressileg brot úr viðtölum við nokkra gesti þáttarins frá áramótum.
Hér er tengill á blaðið sem flettirit. https://issuu.com/jonghauksson/docs/fja_rma_l_a_vo_xtun-5.tbl_2022_4_?fr=sYTMwNzM0MTMzMzQ
Eigið fé heimilanna er þannig fengið út að heildareignir voru 7.985 milljarðar króna og heildarskuldir 2.458 milljarðar króna. Eigið fé jókst því um 341 milljarð króna á árinu 2020; eða um 6,6%.
Í blaðinu Fjármál og ávöxtun er birt yfirlit yfir raunávöxtun allra innlánsreikninga í bankakerfinu á Íslandi. Líkt og undanfarin ár eru rauðar tölur þar áberandi.
Þá eru birt yfirlit yfir raunávöxtun allra sjóða verðbréfafyrirtækjanna á Íslandi. Fram kemur að tólf sjóðir verðbréfafyrirtækjanna skiluðu yfir 35% raunávöxtun. En þarna sjást líka rauðar tölur og á það fyrst og fremst við um sjóði tengdum skuldabréfamarkaðnum.
Raunávöxtun lífeyrissjóðanna í landinu var 10,2%, skv. áætlun.
Hækkun íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu í fyrra var 20,3%.
Úrvalsvísitalan í Kauphöllinni í fyrra hækkaði um 34,6%.
Hagvöxtur á síðasta ári var 4,3%.
Eignasafn lífeyrissjóðanna í janúar 2022 nam 6.550 milljörðum króna og nemur orðið tvöfaldri landsframleiðslu sem var 3.233 milljarðar króna á síðasta ári.
Stýrivextir voru 0,75% í mars í fyrra en eru núna í 2,75%.
Verðbólga – hækkun vísitölu neysluverðs – var 5,6% í fyrra en vísitala neysluverðs til verðtryggingar hækkaði um 4,8% og er stuðst við þá tölu í blaðinu við útreikninga á raunávöxtun.
Verðbréfaeign heimilanna (hlutabréf og skuldabréf) nam 627 milljörðum króna í lok ársins 2020 og ætla má að hún hafi hækkað nokkuð á síðasta ári en góð þátttaka almennings var í útboði Íslandsbanka.
Bankainnstæður heimilanna námu 940 milljörðum króna í árslok 2020 og jukust um 113 milljarða króna.
Þátturinn Stjórnandinn með Jóni G. á er á dagskrá Hringbrautar á sunnudagskvöldum kl. 21 og 23 og endursýndur eftir það á tveggja tíma fresti fram að kvöldmat á mánudögum.