Eiður Smári Guðjohnsen fær hlýjar kveðjur á samfélagsmiðlum eftir að greint var frá því að starf hans væri í hættu sem þjálfari FH vegna meints ölvunaraksturs í vikunni.
Eiður Smári er einn besti – ef ekki sá besti – knattspyrnumaður í sögu þjóðarinnar og lék hann með liðum á borð við Chelsea og Barcelona við frábæran orðstír.
Áfengi getur komið fólki í klandur en þetta er ekki í fyrsta sinn sem Eiður Smári kemst í kastljósið vegna áfengisneyslu. Eins og frægt er orðið náðist myndband af honum ölvuðum í miðborginni þar sem hann kastaði af sér vatni utandyra. Þá var greint frá því að Eiður hafi virst vera undir áhrifum áfengis í þættinum Völlurinn í Sjónvarpi Símans í fyrra.
Eiður er í uppáhaldi hjá mörgum enda skemmtilegur karakter og fáir með jafn mikla þekkingu á fótbolta og hann. Hann fær hlýjar kveðjur frá fólki á samfélagsmiðlum sem reynir að stappa í hann stálinu.
Elsku Eiður okkar allra❤️Það þarf ekki að vera alslæmt að vera kominn á þennan stað. Botninn getur verið frábær byrjunarpunktur á einhverju miklu betra, það hafa margir sýnt og sannað. Gangi þér vel 💚
— Kristján I. Gunnars (@Kristjan_Ingi) October 6, 2022
Endilega Eiður Smári komdu til baka. Lifið er stærra en Fótbolti!
— Hawk Football Artist (@hawk_attacks) October 6, 2022
Vonandi sér Eiður sitt vandamál og leitar sér aðstoðar enginn skömm af því.
— Max Koala (@Maggihodd) October 6, 2022
Menn í Kaplakrika eru með númerið sem hringja á í.#ViðErumFH
Vona svo sannarlega að Eiður Smári nái að snúa við blaðinu. Það er hugrekki í því að viðurkenna vandann og fá aðstoð. Elsku kallinn.
— Hafþór Aron (@Haffi8) October 6, 2022
það er svo ótrúlega sorglegt að sjá idolið mans verða svona illa fyrir barðinu á áfengi.
— Freyr S.N. (@fs3786) October 6, 2022
vona innilega að hann finni það hjá sjálfum sér að þar hægt að snúa blaðinu við og komast aftur á beinu brautina.
Elsku Eiður leitaðu þér hjálpar 💛
— Henrý 🇺🇦 (@henrythor) October 6, 2022