„Klúbbkortunum virðist síst hafa verið dreift til þeirra borgarstarfsmanna sem helst þurfa að sætta sig við bága fundaraðstöðu, t.d. starfsfólks leikskóla,“ segir Egill Þór Jónsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag.
Þar skrifar Egill um Vinnustofu Kjarvals við Austurvöll en eins og Fréttablaðið greindi frá á dögunum drakk yfirstjórn og starfsmenn Reykjavíkurborgar áfengi fyrir meira en hálfa milljón króna. Egill er mjög gagnrýninn á þetta fyrirkomulag og segir að Dagur B. Eggertsson borgarstjóri hafi úthlutað gæðingum innan borgarkerfisins klúbbkortum að Vinnustofu Kjarvals. Fyrr á árinu var auglýst að útsvarsgreiðendur í Reykjavík hefðu greitt 1,6 milljónir króna fyrir klúbbkortin.
„Á vinnustofunni er auglýst góð aðstaða til samkomuhalds, léttar veitingar í boði og að opið sé fram yfir miðnætti um helgar. Markmiðið er sagt vera „að bæta vinnuaðstöðu starfsfólks og tryggja aðgang að fundaraðstöðu utan stjórnsýslubygginga á hagkvæmu verði“. Í sumar var sagt að um tilraunaverkefni væri að ræða, nú er það kallað þróunarverkefni.“
Egill gefur lítið fyrir þau orð borgarstjóra að verkefnið hefði að líkindum leitt til sparnaðar fyrir borgina.
„Allir sjá þó að auðvitað sparast ekkert með því að flytja fundi úr eigin húsnæði, sem ekki þarf að borga fyrir, á veitingastað úti í bæ. Af hverju er það forgangsmál borgarstjóra að tryggja völdum borgarstarfsmönnum fundaraðstöðu hjá einkaklúbbi? Reykjavíkurborg á og rekur um 600 byggingar og eru fjölmargar þeirra með góðri aðstöðu fyrir fundi og annað samkomuhald,“ segir hann. Bætir hann við að starfsmenn í efsta lagi stjórnsýslunnar hjá borginni, þeir starfsmenn sem hafa aðstöðu í Ráðhúsinu og Höfðatorgi við Borgartún þar sem enginn skortur er á fundarherbergjum hafi notið kortanna.
„Skiljanlegt er að borgarstarfsmenn vilji stundum leita út fyrir daglegan vinnustað sinn til fundahalda, t.d. vegna teymisvinnu eða starfsdags. En í þeim tilvikum standa til boða afnot af óteljandi fundarherbergjum Reykjavíkurborgar sem mörg hver eru lítið nýtt. Úrvals fundaraðstaða er í öllum stjórnsýslubyggingum borgarinnar auk góðra fundarsala í grunnskólum, menningarmiðstöðvum, félagsmiðstöðvum, frístundamiðstöðvum og borgarfyrirtækjum. Af hverju hentar vínveitingastaður úti í bæ betur til slíkra funda og viðtala en fjölmörg fundarherbergi borgarinnar af öllum stærðum og gerðum,“ spyr Egill sem segir svarið liggja í augum uppi.
„Nú er komið svar við þessari spurningu. Svarið er Hennessy VSOP, Moscow Mule, Lagavulin (16 ára) og Chardonnay. Útvaldir yfirmenn og starfsmenn borgarinnar hafa drukkið áfengi fyrir hundruð þúsunda króna á Vinnustofu Kjarvals og eru áðurnefndar víntegundir þar á meðal. Þá var tugþúsunda króna áfengisreikningur endurgreiddur í ofboði eftir að Fréttablaðið spurðist fyrir um málið.“
Egill bendir á að hjá Reykjavíkurvíkurborg hafi sú regla lengi gilt við áfengisveitingar að ekki megi veita sterkt vín heldur einungis léttvín og bjór.
„En í Fréttablaðinu sl. laugardag lýsti Dagur borgarstjóri yfir velþóknun sinni á því að vodka, koníak og 16 ára gamalt viskí væru veitt á kostnað borgarinnar á Vinnustofu Kjarvals og sagði að umrædd áfengiskaup væru „til marks um ábyrgð og hófsemi“. Áðurnefnd „léttvínsregla“ gildir því greinilega ekki lengur. Væntanlega fá nú allir borgarstarfsmenn að njóta þessara guðaveiga í teymisvinnu sinni en ekki bara gæðingar borgarstjóra.“