Heimsfaraldur hefur lamað þjóðir heims og yfir tuttugu þúsunds manns hafa látist. Kári Stefánsson hefur ásamt sínu fólki í Íslenskri erfiðagreiningu lagt sitt af mörkum í baráttunni við kórónaveiruna með því að skima fyrir veirunni. Í ítarlegu viðtali við helgarblað Fréttablaðsins kallar Kári COVID-19 heiðursveiru.
Aðspurður um hvort hann óttist að smitast sjálfur svarar Kári neitandi:
„Ég held að ég væri ekki í vinnunni ef ég væri mjög hræddur við þetta. Nú ef ég sýkist þá sýkist ég. Ég vona að ef ég sýkist þá jafni ég mig en ef ég jafna mig ekki þá er ég búinn að lifa býsna góðu lífi. Þetta er eitt af því sem maður getur í raun ekkert gert við. Ég held að þetta sé eitt af þeim augnablikum þar sem einhvers konar æðruleysisbæn myndi passa mjög vel.“
Þá segir Kári einnig:
Það er sumt sem við getum gert: „Við getum þvegið á okkur hendurnar, haldið svolítilli fjarlægð og verið heima hjá okkur eins mikið og hægt er. Við getum lifað heilbrigðu lífi, borðað vel og hreyft okkur og svo framvegis. Þegar maður er búinn að því þá er þetta bara í höndum þessa guðs sem heitir tilviljun.“