Kristrún Frostadóttir, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík suður, ætlar ekki að ræða um hagnað sem hún hlaut af nýtingu kaupréttar sem starfsmaður Kviku banka. Fram kemur í frétt Morgunblaðsins í dag að hagnaðurinn gæti hafa numið um 100 milljónum króna. Þá er haft eftir Loga Einarssyni, formanni Samfylkingarinnar, að hún muni svara.
„Eins og margoft hefur komið fram þá var ég starfsmaður Kviku banka áður en ég ákvað að bjóða mig fram til Alþingis fyrir Samfylkinguna. Eins og öðru starfsfólki bauðst mér kostur á að fjárfesta í áskriftarréttindum í bankanum og við hjónin nýttum okkur sparnað sem við áttum til þess.
Nú þegar lítur út fyrir að ég nái kjöri á Alþingi mun ég að sjálfsögðu, eins og aðrir, fylgja öllum reglum varðandi hagsmunaskráningu þingmanna og gefa upp viðeigandi eignir. Þar er ekki miðað við að fólk opni sín persónulegu fjármál upp á gátt mörg ár aftur í tímann eins og ég hef verið krafin um af sumum fjölmiðlum. Þar af leiðandi hyggst ég ekki tjá mig um mín persónulegu fjármál eða viðskipti sem ég átti áður en ég hóf afskipti af stjórnmálum.
Að öðru leyti vísa ég til þess sem ég hef áður sagt um málið í ítarlegum færslum á netinu. Ég ætla einbeita mér að því að ræða um málefnin sem ég og við í Samfylkingunni viljum berjast fyrir,“ segir í svari hennar til Morgunblaðsins
Andrea Sigurðardóttir, blaðamaður á Viðskiptablaðinu, segir á Twitter að frétt Morgunblaðsins hefði fengið mun meiri viðbrögð ef Kristrún væri í Sjálfstæðisflokknum en ekki Samfylkingunni. „Ef hún væri í Sjálfstæðisflokknum væri allt á hliðinni yfir því hvað hún hefði eiginlega að fela. Ég held að þessi leynd hljóti að skaða hana meira en að svara einfaldlega fyrir þetta,“ segir Andrea, færslu hennar er deilt af Ungum Sjálfstæðismönnum.
Lögmaðurinn Ingvar Birgisson, fyrrverandi formaður SUS, segir svo: „Það þurfti örlitla pressu og ljóminn hvarf á núll einni. Hún er eflaust fín og allt það en hún hefur klúðrað þessu máli PR-lega alla leið,“ segir hann og bætir við: „Við hægrimenn sýnum kaupréttarsamningum fullan skilning. Þ.v. er mín kenning að hún sé að draga lappirnar í þessu því það er erfitt að útskýra þetta fyrir kjósendum eigin flokks og þeirra sem þau keppast um atkvæði við.“