Edda Pétursdóttir, fyrrverandi kærasta Frosta Logasonar segist hafa sagt fjölmiðlakonunni Eddu Falak að svara ekki ásökunum Frosta en hann birti opið bréf til Heimildarinnar í dag, sem Edda starfar á.
Frosti fór mikinn á dögunum þegar hann sakaði Eddu um ýmis ósannindi í viðtölum í gegnum tíðina. Þannig sagði hann Eddu ekki hafa komið hreint og beint fram varðandi fyrri störf sín. Hún hafi ekki unnið í verðbréfamiðlun hjá virtum banka eða hjá lyfjarisanum Novo Nordisk.
Edda hefur verið áberandi undanfarin ár í baráttu sinni gegn kynbundinni áreitni og ofbeldi. Hún hefur haldið úti hlaðvarpinu Eigin konur undanfarin ár, en nýlega var tilkynnt að Edda myndi stýra nýjum þáttum á Heimildinni sem munu einfaldlega kallast Edda Falak.
Frosti og Edda hafa eldað grátt silfur saman undanfarin ár efti að Edda Pétursdóttir, steig fram í viðtali við hlaðvarpið Eigin konur–og bar Frosta þungum sökum. Hann gekkst við ásökunum að hluta til.
Síðustu daga hefur Frosti beint spjótum sínum að Eddu Falak og sakað hana um ósannindi. Í opna bréfi sínu í dag segir Frostiað Edda hafi fyrst vakið athygli þegar hún steig fram sem þolandi kynbundinnar áreitni þegar hún starfaði og bjó í Kaupmannahöfn.
„Sagðist hún hafa legið undir ámælum og niðrandi athugasemdum frá samstarfsmönnum í stórum virtum banka, vegna nærfata og bikínimynda sem hún birti á samfélagsmiðlum á sama tíma og hún miðlaði með verðbréf í bankanum. Þá sagðist hún einnig hafa upplifað sömu framkomu þegar hún vann í fjármáladeild lyfjafyrirtækisins Novo Nordisk í sama landi á svipuðum tíma,“ segir Frosti í bréfinu.
Edda Pétursdóttir sagði í viðtali hjá Eddu í fyrra að hún hafi lifað í stöðugum ótta í tæpan áratug vegna hótanna Frosta. Hún gefur lítið fyrir skýringar hans í málinu og segir hann trúa því sem hann vill trúa.
„Ég sagði Eddu Falak að svara FL ekki. Ég hef upplifað þetta sjálf frá honum, að vera krafin svara ítrekað. En svörin skiptu ekki máli, hann trúir bara því sem hann vill trúa og krefst ÞESS. Hann neitar alfarið að heyra og meðtaka sannleikann,“ skrifar Edda Pétursdóttir og birtir skjáskot af samskiptum sínum við Frosta.
Ég sagði @eddafalak að svara FL ekki. Ég hef upplifað þetta sjálf frá honum, að vera krafin svara ítrekað. En svörin skiptu ekki máli, hann trúir bara því sem hann vill trúa og krefst ÞESS. Hann neitar alfarið að heyra og meðtaka sannleikann. pic.twitter.com/5CviIeZOWq
— Edda Pétursdóttir (@EddaPeturs) March 23, 2023