Ebba Guðný Guðmundsdóttir, sem fyrir margt löngu varð landskunn fyrir sjónvarpsþætti sína og bækur þar sem hún kennir Íslendingum að matreiða girnilega og holla rétti, skrifaði áhugaverða grein um jólin í Fréttablaðinu í dag.
Þar minnist hún fallegra orða móður sinnar um jólin og tilveruna og fjallar um foreldrahlutverkið.
„Stundum held ég að eitt helsta hlutverk okkar foreldra sé að segja unga fólkinu okkar að minnka kröfur og væntingar. Lífið er skemmtilegra þegar maður dæmir sjálfan sig mildilega. Þorir að vera eins og manni hentar og hefur ekki áhyggjur af því hvort eitthvað sé rétt, rangt, gott slæmt eða nógu gott hjá manni.“ segir Ebba og bætir við litlum móður sína:
„Mér finnst mamma eiginlega hafa verið í fullri vinnu alla ævi við að segja mér að það sem ég geri sé nógu gott. Að ég sé nógu góð. Af því það er auðvelt að gleyma því inni á milli og því fylgir vanlíðan.“
Þá bendir Ebba á að kona hafa sagt við sig um daginn að hún væri í veikindaleyfi og þættu því jólin yndisleg. „Ein sagði við mig í gær að hún væri í veikindaleyfi og loksins þætti henni jólin yndisleg. Þau hefðu hingað til verið vesen og allt sem truflaði vinnuna. Núna ætlaði hún að njóta með börnunum sínum.“
Þá greinir Ebba frá aðventuráði sem hún fékk frá móður sinni, en það er eftirfarandi:
„Mig langar að deila aðventuráði frá mömmu með öllum þeim sem finna fyrir jólaundirbúningskvíða. Það á allt að vera í drasli fram að jólum. Þá er svo gaman þegar allt verður fínt rétt fyrir jól. Allt verður enn þá hátíðlegra og fallegra. Hún á jólagjafapoka (og ég líka) sem öllum gjöfum er stungið inn í. Mjög fljótlegt. Hún setur límmiðakort á efnið en ég endurnýti mín kort til að einfalda mér lífið. Þannig að eiginmaðurinn og börnin fá alltaf sömu jólamerkimiðana hvert ár. Þau kvarta ekki.“