Daði: Þetta skaltu hugsa næst þegar þú finnur stingandi skítalyktina

Daði Geir Samúelsson, sem býður sig fram í 2. til 4. sæti á lista Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi, hugsar líklega öðruvísi en flestir þegar hann finnur stingandi skítalykt læðast að vitum sínum – lykt sem stundum veldur ónotatilfinningu og stundum ógleði.

Daði skrifar athyglisverða grein um þetta sem birtist á vef Vísis í morgun.

Daði segir að margir kannist við þessa ónotatilfinningu ef lyktarskynið er í lagi.

„En í hvert skipti sem ég finn þessa lykt þá hugsa ég: „Af hverju virkjum við ekki þessa orku?“ Þessari lykt fylgir oft mjög orkumikil gastegund sem kallast metan og metan má nýta sem orkugjafa,“ segir Daði sem bendir þó á að metangasið sjálft sé lyktarlaust og myndast við rotnun lífrænna leyfa við loftfirrtar aðstæður. Segir hann að gasið sé ansi oft fylgifiskur þar sem skítalykt er að finna.

Daði segir að metangas sé víða í kringum okkur, til dæmis á sorphaugum, rotþróm, fjósum, fjárhúsum, svínabúum og fleiri stöðum. Með því að safna því saman mætti búa til verðmætan orkugjafa fyrir Ísland.

„Hægt er að nýta það til að keyra áfram vörubíla, rútur og auðvitað heimilisbílinn. Ekki nóg með að vera kominn með innlendan orkugjafa með því að fanga metanið heldur erum við að draga úr gróðurhúsaáhrifum. Metan er nefnilega mjög skaðleg gróðurhúsalofttegund og er talin vera um 21 sinnum skaðlegri heldur en sameind af koltvísýringi,“ segir hann.

Daði bendir á að með því að brenna metan brotni það niður í minna skaðlegar gróðurhúsalofttegundir og með því að fanga það og nota sem eldsneyti á vélaflota landsins verði Ísland sjálfbærara um eldsneyti og dragi þar að auki úr gróðurhúsaáhrifum.

„Ef ekkert er gert flæðir metanið áfram út í andrúmsloftið og við verðum af þessum orkugjafa og umhverfið tapar. Metan er að myndast um allt land þannig að það myndi líka styðja við að geta nálgast þennan orkugjafa víðs vegar um landið sem gerði það raunhæft að metanvæða hluta af vélaflota landsins.“

Daði segir að ungt Framsóknarfólk hafi samþykkt á sambandsþingi sínu í fyrrahaust ályktun um að leggja ætti áherslu á að safna metani og nýta sem orkugjafa, þjóðinni til heilla. Endar hann grein sína á þessum orðum:

„Næst þegar þú finnur skítalykt hugsaðu; þarna er óbeisluð orka sem við ættum að nýta til að gera okkar samfélag sjálfbærara og umhverfisvænna.“