Bubbi um Mörtu Guðjóns: „Ég lofa strax að hætta að fróa mér“ – „Bubbi WHAT?????“

Einhverjir hafa sennilega tekið andköf þegar þeir sáu athugasemd tónlistarmannsins Bubba Morthens við færslu leikarans og grínistans Vilhelms Neto á Twitter í dag.

Marta Guðjónsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, birti fræga grein á Vísi í gær þar sem hún gerði lítið úr Gísla Marteini Baldurssyni, sjónvarpsmanni og fyrrverandi borgarfulltrúa. Kallaði hún hann „pjakk“ og „prinsessu“ svo eitthvað sé nefnt. Marta var því nokkuð á milli tannanna á fólki í gær enda greinin nokkuð óvenjuleg.

Vilhelm Neto birti mynd af Mörtu á Twitter í gær og beindi eftirfarandi spurningu til fylgjenda sinna:

„Þessi kona arkar inn í herbergið þitt og segir að þú sért búinn að vera óvenju drjúgur með þig þessa dagana, og þá sé mikið sagt. Hvað gerir þú, pjakkurinn þinn?“

Ekki höfðu ýkja margar skrifað athugasemdir við færsluna fyrr í dag, eða þar til Bubbi mætti á svæðið eftir hádegi. Í færslunni sagði hann einfaldlega:

„Ég lofa strax að hætta að hætta fróa mér.“

Eins og sést hér að neðan hefur færslan vakið nokkra athygli. Einn notandi segir til dæmis: „Bubbi WHAT?????“