Sigurður H. Guðjónsson lögmaður og framkvæmdastjóri Húseigendafélagsins verður hjá Sjöfn Þórðar í þættinum Fasteignir og Heimili í kvöld:
Háannatími aðalfunda húsfélaga er genginn í garð og þá er að mörgu að huga og vert að vanda til verka. Sigurður H. Guðjónsson lögfræðingur og framkvæmdastjóri Húseigandafélagsins þekkir vel til og hefur áratuga reynslu þegar kemur að því að halda aðalfundi húsfélaga og hvað ber að hafa í huga.
En Húseigandafélagið er fyrst og fremst almenn hagsmunasamtök fasteignaeigenda hér á landi og gegnir í því tilefni mjög mikilvægu hlutverki og hefur á 90 ára starfsferli haft veruleg áhrif þeim til framdráttar og staðið dyggan vörð um hagsmuni þeirra. Sigurður verður gestur Sjafnar í kvöld og Sjöfn fær Sigurð meðal annars til þess að fara yfir hvaða atriði geta skipt sköpum og hvernig hægt er að koma í veg fyrir að fundir sem þessir fari út um þúfur.
„Fjöleignarhúsalögin eru mikill bálkur og eru þau lög sem brenna oftast og heitast á venjulegu „upp og ofan fólki“ , svona „dagligdags“ og á degi sem nóttu. Mannlífið er fjölbreytt og sambýlið og samskiptin línudans Þar sem vegast á tillitssemi og umburðalyndi. Einn vill frið og annar fjör, einn er framkvæmdasamur en annar værukær og svo framvegis,“ segir Sigurður. Meira um þessi mál í þættinum í kvöld.
Þátturinn Fasteignir & Heimili verður á dagskrá í kvöld klukkan 20.30 og er að jafnan ferskur, fjölbreyttur og með persónulegum blæ.