Brynjar hitti sérfræðing í andlegum krísum sem greindi hann óumbeðinn með allskonar vandamál

Brynjar Níelsson, fyrrverandi þingmaður og núverandi aðstoðarmaður dómsmálaráðherra, er þeirrar skoðunar að maðurinn sé yndisleg vera. Þó að Brynjar sé ekki allra verður ekki annað sagt en að hann sé mikill húmoristi.

„Fólk er ólíkt á alla kanta og með sína kosti og galla. Eina fólkið sem truflar mig aðeins eru þeir sem finnst þeir sjálfir fullkomnir og eru fyrstir með vöndinn þegar aðrir misstiga sig. Það er eins og dómharkan hafi aukist með tilkomu samfélagsmiðla, eins góðir og þeir eru að öðru leyti,“ sagði Brynjar í færslu á Facebook-síðu sinni í gærkvöldi.

„Ég hrífst sérstaklega af fólki sem talar beint frá hjartanu og af heiðarleika en lætur ekki illgirni og andúð ráða för þótt sumt megi auðvitað kyrrt liggja. Ég hef áður sagt frá konunni, sem ég þekkti ekki neitt, og sagði mér að ég væri ekki næstum því eins ófríður í eigin persónu eins og á myndum. Mér þótti mjög vænt um það,“ bætir hann við.

Brynjar segir svo frá því að hann hafi nýlega hitt sérfræðing í andlegum krísum á förnum vegi sem hafi greint hann umsvifalaust og óumbeðinn með þunglyndi og kvíða.

„Þessi sífellda neikvæðni, fúllyndi, sjálfhverfa og tilraunir til að slá á létta strengi á sama tíma væri ótvíræð merki um þessa andlegu kvilla. Svo sem ekki í fyrsta sinn sem imprað hefur verið á þessu við mig. En ég skynjaði ekki annað en að baki þessu væri góður hugur, í versta falli bissness tækifæri,“ segir hann og slær á létta strengi.