Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, lætur jafnan allt flakka á samfélagsmiðlum og skiptir þá engu hvort um pólitíska andstæðinga er að ræða eða hann sjálfan – þegar hann gerir einhvern óskunda. Brynjar birti eina slíka færslu áðan:
„Græðgin getur stundum komið manni um koll. Hámaði í mig pönnuköku með vanilluís með slíku offorsi að ég gleypti nikótínpúðann. Eins og sannur karlmaður varð ég strax mjög veikur og þegar ég var við það að missa meðvitund bað ég Soffíu frænku að hringja í 112. „Já, vertu rólegur maður, hvað er númerið"?“
Brynjar segir að þeir á neyðarmóttökunni hafi aldrei fengið annan eins aumingja á sitt borð. „Bentu mér á að léttsteiktir níkótínpúðar væri mjög vinsæll matur og oft matreiddur með pasta og tómatsósu. Væri einnig vinsæll hrár í hinum ýmsu sushi réttum. Þessi saga segir hvað andlegi þátturinn getur ráðið miklu um veikindi fólks.“
Græðgin getur stundum komið manni um koll. Hámaði í mig pönnuköku með vanilluís með slíku offorsi að ég gleypti...
Posted by Brynjar Níelsson on Þriðjudagur, 30. mars 2021